fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimÍþróttirFótboltiEiður Smári ráðinn sem aðalþjálfari FH í knattspyrnu

Eiður Smári ráðinn sem aðalþjálfari FH í knattspyrnu

Davíð Þór Viðarsson verður aðstoðarþjálfari FH

Knattspyrnudeild FH hefur komist að samkomulagi við Eið Smára Guðjohnsen um að hann taki við sem aðalþjálfari knattspyrnudeildar karla hjá FH. Samningurinn er til tveggja ára.

Þessu var greint frá á fhingar á Facebook.

Eiður Smári tók við FH liðinu ásamt Loga Ólafssyni um miðjan júlí sl. og undir þeirra stjórn náði liðið 2. sæti  í úrvalsdeildinni með 36 stig þegar fjórar umferðir voru enn óleiknar. FH var einnig komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Sigraði liðið í 10 af 14 leikjum liðsins undir stjórn Eiðs og Loga í úrvalsdeildinni.

Davíð Þór sem talinn er með betri leikmönnum FH frá upphafi stígur hér sín fyrstu skref í þjálfun. Verður hann aðstoðarþjálfari. Davíð vann sjö Íslandsmeistaratitla með FH, fjórum sinnum sem fyrirliði liðsins. Davíð spilaði 319 leiki fyrir FH og skoraði í þeim 11 mörk.

Logi Ólafsson hefur komið víða við á sínum magnaða ferli og unnið tvo Íslandsmeistaratitla. Þessi fyrrum landsliðsþjálfari, aðstoðarþjálfari Lilleström og þjálfari FH mun vera áfram innan þjálfarateymisins en með breyttum áherslum. Logi mun taka við nýju starfi sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar FH og mun hann m.a. vinna að stefnumótun og skipulagningu alls afreksstarfs félagsins sem heldur utan um okkar efnilegustu leikmenn í karla og kvennaflokki.

Fjalar Þorgeirsson mun áfram starfa sem markmannsþjálfari meistaraflokks karla ásamt því að Hákon Hallfreðsson mun áfram sjá um styrktarþjálfun liðsins.

Davíð Þór Viðarsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Logi Ólafsson. Ljósm.: FH

Á sama tíma mun Guðlaugur Baldursson láta af störfum sem aðstoðarþjálfari.

„Markmið FH eru skýr með þessum ráðningum, að byggja ofan á þann góða árangur sem náðist á síðasta tímabili og bæta enn frekar allt faglegt starf félagsins til lengri tíma,“ segir ennfremur í tilkynningu á Facebooksíðunni fhingar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2