fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMæðrastyrksnefnd sendir út ákall um stuðning

Mæðrastyrksnefnd sendir út ákall um stuðning

Miður að þörf sé fyrir samtök af þessum toga

Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar mun sem fyrr veita fólki í brýnni neyð aðstoð fyrir jólahátíðina.

Segir í ákalli til bæjaryfirvalda og fyrirtækja að það sé miður að þörf sé fyrir samtök af þessum toga.

Til Mæðrastyrksnefndar leitar fólk sem getur átt við tímabundna erfiðleika að etja, fólk sem hefur verið lengi veikt. Þangað leita öryrkjar, mæður, feður og foreldrar sem ná engan veginn að halda jólahátíð – Fólk á öllum aldri.

Mörgum finnst leitt að þurfa að leita sér hjálpar og það gerir oft sporin þung til nefndarinnar.

Í Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar starfa fulltrúar frá kvenfélögum sem eru aðilar að Bandalagi kvenna í Hafnarfirði sem er 40 ára gamalt félag. Allar vinna sjálfboðaliðastarf og það eru ófáir félagarnir sem hafa gefið af sér í þágu nefndarinnar.

Sjálfstæð mæðrastyrksnefnd

Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar er sjálfstætt starfandi og tengist á engan hátt, hvorki
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur né Mæðrastyrksnefnd Kópavogs.

Fjölmörg fyrirtæki, félög og einstaklinga hafa í gegnum tíðina styrkt félagið á ýmsan hátt.

Mæðrastyrksnefnd hefur undanfarin ár getað úthlutað inneignarkortum í matvöruverslanir, mismikið eftir þörfum hvers og eins. Einnig hefur nefndin reynt að hafa litlar jólagjafir fyrir börn og unglinga. Stundum býðst sælgæti eða aðrar vörur sem koma fjölskyldum vel.

„Það væri ánægjulegt ef okkur tækist á enn einni aðventunni að styðja þá meðbræður okkar hér í Hafnarfirði sem til okkar leita,“ segir í ákalli Mæðrastyrksnefndar til Hafnarfjarðarbæjar og fjölmargra fyrirtækja.

Segir þar að það geti nefndin aðeins með hjálp allra þeirra frábæru fyrirtækja, félagasamtaka, einkaaðila, jafnvel skólabarna sem gleðja aðra með framlagi sínu.

Þörfin er virkilega mikil núna í ár og býst Mæðrastyrksnefndin við enn fleiri umsóknum í ár.

Þú getur styrkt

Velunnurum nefndarinnar er bent á reikninga nefndarinnar:

í Íslandsbanka 544-04-760686
í Landsbanka   140-15-381231

Kennitala: 460577-0399

styrkur@maedrastyrksnefnd.is

Formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar er Ásta Eyjólfsdóttir.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2