fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniSýning á verkum Gunnars Hjaltasonar opnuð í dag í Hafnarborg - Söfnin...

Sýning á verkum Gunnars Hjaltasonar opnuð í dag í Hafnarborg – Söfnin aftur opin

Í dag eru söfnin opin á ný og Hafnarborg opnar á ný með áhugaverðri sýningu í Sverrissal á verkum hafnfirska listamannsins Gunnars Hjaltasonar sem hefði orðið 100 ára 21. nóvember nk.

Á sýningunni eru verk sem tengjast Hafnarfirði og þá sérstaklega grafíkmyndir. Þó eru þarna fleiri sýnishorn af fjöllum og bæjum. Einnig eru smíðisgripir og fleira þar að finna en Gunnar var einnig mjög fær gullsmiður.

Gunnar Ásgeir Hjaltason var fæddur að Ytri Bakka við Eyjafjörð 1920 en fluttist þaðan ungur til Reykjavíkur og síðan til Hafnarfjarðar 1952. Þá lærði hann gullsmíði hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi Kaldal árin 1943–1947 en áður hafði hann stundað nám við Teikniskóla Björns Björnssonar og Marteins Guðmundssonar árin 1933–1942. Einnig sótti hann nokkur námskeið á vegum Handíðaskólans, m.a. í tréristu hjá Hans Alexander Müller árið 1952. Gunnar lærði útvarpsvirkjun hjá Ríkisútvarpinu og vann nokkur ár við það.

Gunnar hélt fjölmargar einkasýningar víðs vegar um landið frá árinu 1964, auk þess sem hann tók þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Hann lést árið 1999.

Gunnar leitaði víða fanga í viðfangsefnum sínum. Gömul hús voru honum kærkomið yrkisefni og fáir hafa gleggra auga fyrir bátum, sérkennum þeirra, lit og lögun en hann. Þó var náttúran sjálf í tign og mikilleika eða fínlegri fegurð það sem hann sótti oftast fyrirmyndir sínar til. Landslagsmyndir af ýmsum toga voru sömuleiðis ósjaldan uppistaðan á sýningum hans. Við þá myndgerð, svo og við lýsingar ferðabóka, kom honum að góðu haldi hin mikla þekking hans á landinu, þar sem hann var gæddur einstöku minni þegar landslag var annars vegar. Hann var óspar á að deila list sinni og fjölmargir Hafnfirðingar eiga myndir eftir hann og vinsælar voru tússteikningar hans sem hann gerði á sérvíettur og gaf sessunautum sínum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2