fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirLögðu fram fjölmargar tillögur þegar fjárhagsáætlun var lögð fram

Lögðu fram fjölmargar tillögur þegar fjárhagsáætlun var lögð fram

Bæjarfulltrúar Samfylkingar vilja ýmsar áherslubreytingar

Tillögur Samfylkingarinnar sem lagðar eru fram við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar 2021 í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

„Sveitarfélögin eru stór í efnahagslegu samhengi á Íslandi. Allt sem þau gera hefur áhrif út í samfélagið,“ segir í tilkynningur frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar þeim Friðþjófi Helga Karlssyni og Sigrúnu Sverrisdóttur.

Segja þau það því þurfi kjörnir fulltrúar sem eru í forsvari fyrir sveitarfélögin að gæta vel að þeim aðgerðum sem farið er í. „Niðurskurður í rekstri getur sem dæmi komið í bakið á okkur í framtíðinni og birst okkur í ófyrirséðum félagslegum og fjárhagslegum vanda.“

Fræðimenn eru sammála, að þeirra sögn, um að stóra verkefni okkar á næstu árum sé að fjárfesta í kerfisbreytingum á vinnumarkaði sem geri okkur kleift að flytja fólk úr störfum þar sem tæknin getur sinnt verkinu yfir í greinar sem þarfnast mannlegrar nándar.

Segja þau fræðimenn einnig vera sammála um að það sé mikilvægt að nýta tímann í núverandi niðursveiflu til þess að viðhalda þjónustustigi samhliða því að fjárfesta í nýrri þekkingu og nýjum lausnum í mennta-, félags- og velferðarmálum.

Að þeirra mati sé því mikilvægarar að fjárfesta þannig miklu frekar í fólki en steinsteypu. Það sé skynsamlegast fyrir okkur í yfirstandandi efnahagsþrengingum að auka fjárframlög til nýsköpunar, mennta-, félags og velferðarmála og skapandi greina.

Telja þau að fjölga þurfi störfum bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum. Bent hafi verið á að í atvinnukreppu sé ekki rétti tíminn til að karpa um hlutfallslegt vægi opinberrar þjónustu og einkareksturs. „Það ætti einnig að vera öllum ljóst að við núverandi aðstæður myndi niðurskurður og uppsagnir hjá sveitarfélögum dýpka og lengja kreppuna,“ segir í tilkynningunni.

„Nú er lag að fjárfesta í verkefnum sem styðja m.a. við velferð, menntun, lýðheilsu, menningu og grænni framtíð,“ segja þau Friðþjófur Helgi og Sigrún og hafa lagt fram tilögur í 15 liðum við framlagningu fjárhagsáætlunar Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Sýndarsamráð

Aðspurður hvers vegna þessar tillögur hafi ekki verið lagðar fram við fjárhagsáætlunargerðina segir Friðþjófur Helgi að þrátt fyrir fagurgala meirihlutans um að best sé að vinna þetta í sátt og samlyndi sé það samráð einhvers konar sýndarsamráð  sem hvorki er fugl né fiskur.  „Þess vegna lögðum við talsverða vinnu í að koma með þessar breytingartillögur okkar við fyrri umræðu áætlunarinnar svo ráðin gætu haft tíma til þess að fara yfir þær og meta hvort ekki sé rétt að koma einhverjum þeirra inn í áætlunina fyrir seinni umræðu,“ segir Friðjþjófur Helgi.  „Frá því er að segja að nú hafa umhverfis- og framkvæmdarráð, fræðsluráð og bæjarráð boðað til auka fundar í næstu viku til að fjalla um þessar tillögur okkar.  Hvort það er eintóm sýndarmennska er ekki gott að segja á þessari stundu. En við vonum það besta því að okkar mati eru þetta allt mikilvægar tillögur á þessum sérstöku tímum sem við lifum nú.“ 

1.   Nýtt starf forvarnarfulltrúa

Mikilvægt er að ráðinn verði forvarnarfulltrúi í 50-100% starf sem heyra myndi undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Það er ljóst að ungt fólk hefur upplifað talsverða vanlíðan og erfiðleika í tengslum við heimsfaraldur kórónuveirunnar og einhver hópur hefur flosnað upp úr námi. Því er mikilvægt að setja inn aukið fé til að styðja við ungt fólk á þessum erfiðu tímum og koma í veg fyrir að það leiti í auknum mæli í neyslu og annan óheilbrigðan lífsstíl. Öflugar forvarnir eru afar mikilvægar til að hægt sé að takast á við eftirköst faraldursins og draga úr þeim skaða sem hann getur valdið hjá ungu fólki í samfélaginu.

2.   Efla starfsemi ungmennahúsanna

Fjölga þarf stöðugildum og rekstrarfé til Hamarsins og Músík og Mótor svo efla megi starf þeirra enn frekar. Það er mikilvægt að ungu fólki, 16-25 ára sé boðið upp á fjölbreytta þjónustu ekki hvað síst á þeim skrítnu og erfiðu tímum sem við lifum nú á. Það eru vísbendingar um verri andlega líðan þessa aldurshóps og meiri einangrun einstaklinga innan hans sem kalla á tafarlausar aðgerðir. Ungmennahúsin gegna mismunandi hlutverki í tómstundastarfi hafnfirskra ungmenna en hafa sameiginleg markmið um að stuðla að menningu og bættri þjónustu við ungmennin í gegnum þau verkefni sem þau taka þátt í. Hlutverk ungmennahúsanna er tvíþætt, annarsvegar að bjóða ungmennum upp á tómstundir sem hafa forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Hins vegar er hlutverk þeirra að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi. Áhersla er lögð á fjölbreytileikann og að allir upplifi sig velkomna.
Við leggjum því til að fjölgað verði um 2 stöðugildi í Hamrinum og 1 stöðugildi í Músík og Mótor á næsta fjárhagsári.

3.   73 milljónir kr. til þróunar- og nýsköpunarsjóður leik- og grunnskóla

Nýsköpunar- og þróunarstarf er mikilvægur hluti skólastarfs. Við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu nú um stundir þá er afar mikilvægt að hvetja til þess að efla faglegt starf í skólum svo sem þróun kennsluaðferða og tækni sem hægt er að nota til hagsbóta fyrir nemendur í skólum bæjarins. Áætlað er að leggja 23 milljónir í þennan sjóð á næsta ári.  Það er langt frá því að vera nóg við núverandi aðstæður. Því leggjum við til að lagðar verði 50 milljónir til viðbótar í þróunar- og nýsköpunarsjóð leik- og grunnskóla sem bæði opinberir aðilar og einkaaðilar geta sótt fjármagn í til að þróa nýjar lausnir og aðferðir til hagsbóta fyrir hafnfirska nemendur.

4.   Uppbygging leikskóla í Öldutúnsskólahverfi

Við fulltrúar Samfylkingarinnar leggjum til að hafist verði handa án tafa við frekari uppbyggingu á leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla. Það er fyrirséð að með fjölgun íbúa í hverfinu, breytinga á aldurssamsetningu vegna endurnýjunar í hverfinu sem og með frekari áætlunum um lækkun á inntökualdri muni þörfin í hverfinu síst fara minnkandi og því mikilvægt að horfa til framtíðar.  Ráðist verði þegar á næsta ári í að byggja upp þessa mikilvægu grunnþjónustu innan hverfisins með áherslu á að samnýta grunnstoðir leik- og grunnskóla og draga þannig úr aðgreiningu milli skólastiga.

5.   Efla starf Brúarinnar með fjölgun stöðugilda

Fjölga þarf stöðugildum og efla enn frekar starf Brúarinnar. Það er ljóst að þverfaglegt starf í grunnskólum bæjarins hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú um stundir. Í kjölfar farsóttarinnar og þeirra efnahags- og félagslegu áhrifa sem hún hefur haft verður mikil þörf á að mæta nemendum í leik- og grunnskólum með markvissum hætti með snemmtækri íhlutun. Því er það tillaga okkar að í það minnsta tveimur stöðugildum verði bætt við til að efla þetta mikilvæga starf strax á næsta ári.

6.   Barnavernd – fjölga stöðugildum til að mæta auknu álagi

Það er ljóst að brýnt er að fjölga stöðugildum í barnavernd vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur þegar haft á samfélag okkar. Einnig er ljóst að þörfin á aðkomu barnaverndar verður ekki minni á komandi ári. Það er ekki viturlegt að láta okkar góða fagfólk sem við eigum hér í bænum á þessu sviði hlaupa bara hraðar og hraðar, það mun koma niður á þjónustunni til lengri tíma litið og leiða til kulnunar starfsfólks. Til að takast á við þau verkefni sem bíða okkar hér í bænum á næsta ári þá er að okkar mati nauðsynlegt að fjölga stöðugildum í barnavernd að minnsta kosti um tvö á næsta ári.

7.   Nýsköpun í velferðarþjónustu

Komið verði á laggirnar þróunarsjóði sem ýtir undir nýsköpun í velferðarþjónustu. Mikilvægt er að fjárfesta í þekkingu í þeirri þjónustu sem krefst mannlegrar nándar. Samdóma álit hagfræðinga um allan heim er að efla þurfi velferðarþjónustu og hvetja til nýsköpunar hvort sem um er ræða verkefni, lausnir eða hugmyndir opinberra eða einkaaðila. Við leggjum því til að settar verði 50 milljónir í sjóð til efla velferðarþjónustu í sveitarfélaginu.

8.   Þjónusta við aldraða

Gert er ráð fyrir minna fjármagni inn í þennan þjónustuþátt á næsta ári þegar við ættum einmitt að vera að efla þjónustuna eða í það minnsta að halda í horfinu á milli ára. Það er óásættanlegt að  gert sé ráð fyrir 6% samdrætti í þjónustu við aldraða í sveitarfélaginu.
Við leggjum til að horfið verði frá því og sett fram aukning sem nemur að minnsta kosti 3% við þennan lið í fjárhagsáætluninnni. Eldri íbúar bæjarins hafa margir hverjir búið við mikla einangrun undanfarin misseri. Það er því mikilvæg fyrir andlega og líkamlega heilsu þessa hóps að efla félagsstarf þeirra sem og aðra þjónustu við hann.

9.   Fjárfestum í menningu og listum

Covid 19 ástandið hefur þýtt algjöran tekjubrest hjá listafólki í samfélagi okkar. Því er mikilvægt að bæta fjármagni í þennan málflokk og fjárfesta þar til framtíðar. Sérstaklega  er mikilvæg að styðja við ungt hafnfirskt listafólk. Við leggjum til að settur verði upp vettvangur fyrir ungt fólk til listsköpunar og sýninga. Einnig að það verði settur á laggirnar sérstakur 20 milljón króna sjóður sem ætlaður er til að styðja við listafólk í bænum með sérstaka áherslu á ungt listafólk.

10. Umhverfis- og auðlindastefna Hafnarfjarðar – aðgerðir í loftslagsmálum

Settar verði 50 milljónir í að fylgja eftir aðgerðaráætlun í umhverfismálum sem er hluti af umhverfis- og auðlindastefnu Hafnarfjarðar. Svo hægt verði að sækja kröftuglega fram á hennar grunni. Fjármagn verði fengið með því að draga úr fjármagni til LED-lampavæðingar ljósastaura og til kaupa á jólalýsingu.

11. Grænn fjárfestingarsjóður – nýsköpun í umhverfismálum

Settar verði 50 milljónir í grænan fjárfestingasjóð. Í þann sjóð geti bæði opinberir aðilar sem og einkaaðilar sótt til að efla nýsköpun í umhverfismálum í sveitarfélaginu. Fjármagn verði fengið með því að draga úr fjármagni til LED-lampavæðingar ljósastaura og til kaupa á jólalýsingu.

12. Ráðist verði í framkvæmdir á Óla Run túni

Uppbygging á grænum svæðum og útivistarsvæðum í bæjarlandinu, eykur lífsgæði og stuðlar að meiri útivist og samveru fjölskyldunnar. Sem aftur leiðir til betri andlegrar- og líkamlegrar heilsu. Mikilvæg fjárfesting til framtíðar sem mun borga sig margfalt þegar til lengri tíma er litið. Við leggjum því til að ráðist verði strax á næsta ári í framkvæmdir á Óla Run túni.  

13. Náttúruperlur í umhverfi okkar og þróun á útivistarsvæðum í Hafnarfirði

Helgafell, kennileiti og skilti 
Það er mikilvægt fyrir Hafnarfjörð að vinna hratt og vel að betri og öruggari aðstæðum á svæðinu í kring um Helgafell. Á gönguleiðina upp á fellið þyrfti að setja kennileiti, skilti eða eitthvað slíkt sem minnkar líkur á að fólk villist af leið sem gerist þar mjög reglulega og einnig flýtir það fyrir ef eitthvað kemur upp á ef sá sem lendir í vandræðum getur bent á kennileiti sem flýta fyrir því að hægt sé að staðsetja viðkomandi. Það vantar sárlega greinagóðar upplýsingar um svæðið í kring um Helgafell, að þar séu gefnar upp upplýsingar um gönguleiðir, vegalengdir ofl. og farið yfir sögu og örnefni svæðisins.  Umferðin um svæðið er mikil og þétt og við eigum að gera það sem í okkar valdi stendur til að auka á ánægju þeirra sem þar fara um og tryggja öryggi eftir því sem unnt er.

Hvaleyrarvatn og umhverfi þess
Fara þarf í hugmyndavinnu svo svæðið verði enn meiri útivistarparadís en það er í dag. Þar vantar tilfinnanlega bílastæði og hægt væri að fá skátana í lið með bæjaryfirvöldum við að búa þar til allsherjar ævintýra- og útivistarsvæði. Með baðaðstöðu, útisturtum, góðri salernisaðstöð og fleiri bekkjum og borðum fyrir grill og nesti. Þar mætti líka sjá yfirbyggt grillskýli og svo mætti lengi teljaSkíða- og sleðabrekka við Stórhöfða yrði svo frábær viðbót við þetta skemmtilega svæði.

Leiksvæði fyrir þá sem stunda vetraríþróttir í bænum eða upplandinu
Mikilvægt er að fara vinnu við að skoða aðstöðu í bænum fyrir skíða- og brettafólk og svo auðvitað fyrir þá sem vilja renna sér á sleðum og þotum.
Víðistaðatún væri kjörinn vettvangur fyrir þetta en einnig mætti hugsa sér að útbúa slíkt svæði á Holtinu við nýju göngubrúna yfir á Ásvelli. Slíkt svæði væri þá bæði í göngufæri við Ásvellina, Holtið og jafnvel Suðurbæ að hluta. Skoða þarf möguleika á að flytja snjó og byggja jafnvel upp rampa og fleira þegar veður býður upp á það.
Á skipulagi fyrir svæðið við Seldal og Stórhöfða er skíðabrekka.  Skoða mætti vel möguleika á að fara nánari skipulagsvinnu á því svæði á næsta ári.

Lagt er til settar verði 50 milljónir í undirbúning og framkvæmdir í tengslum við ofangreindar tillögur um náttúruperlur í umhverfi okkar og þróun á útivistarsvæðum í Hafnarfirði og verði þær teknar af liðnum uppbygging íþrótta- og útivistarsvæða og/eða af liðnum endurnýjun á lömpum í ljósastaurum bæjarins og jólalýsingu hans.

14.   Atvinnumál

Öflugt atvinnulíf er undirstaða hvers samfélags. Mikilvægt er að til sé skýr og markmiðsbundin stefna í atvinnumálum í hverju sveitarfélagi. Því miður er slík stefna ekki til hér í Hafnarfirði í dag. Afar mikilvægt er að úr því verði bætt hið fyrsta.
Öllum má ljóst vera að það er mikilvægt að sveitarfélagið kosti kapps um það að skapa hagkvæm skilyrði fyrir atvinnulífið og fyrirtækin í bænum. Til að tryggja skilvirka aðkomu Hafnarfjarðarbæjar að almennum og sértækum verkefnum er nauðsynlegt að móta skýra stefnu í atvinnumálum. Hafnarfjarðarbær á að leitast við að skapa kjörumhverfi þar sem einstaklingar og fyrirtæki sjá tækifæri í því að stofna til atvinnurekstrar. Bæjaryfirvöld eiga einnig að gera sér far um það að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að atvinnulíf í Hafnarfirði byggi á fjölbreytni, háu þekkingarstigi, sköpunarkrafti, öflugum útflutningi og verðmætasköpun.
Við leggjum það því til að settar verði 15 milljónir í vinnu við gerð á metnaðarfullri atvinnustefnu og stefnumörkun á hennar grunni fyrir Hafnarfjörð á næsta fjárhagsári.

15.   Lækkun á launum bæjarfulltrúa

Að lokum leggjum við til að laun bæjarfulltrúa verði lækkuð í það sem þau voru áður en til hækkunar þeirra kom í vor. Með því sparast fjármunir sem nýtast myndu vel í mörg mikilvæg verkefni í samfélaginu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2