fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirHandboltiSóttvarnarreglur of íþyngjandi svo FH dregur sig úr Evrópukeppni

Sóttvarnarreglur of íþyngjandi svo FH dregur sig úr Evrópukeppni

Handknattleiksdeild FH hefur sendt frá sér yfirlýsingu þar sem tilkynnt er að FH hafi neyðst til að draga lið sitt úr Evrópukeppninni í handbolta.

Handknattleiksdeild FH og HC Robe Zubri frá Tékklandi hafa undanfarna viku verið í daglegum samskiptum vegna fyrirhugaðra leikja liðanna í Evrópukeppninni í handknattleik. Hafa félögin tvö í samráði við Handknattleikssamband Íslands, Handknattleikssamband Tékklands og Evrópska handknattleikssambandiða lagt mikla vinnu í að reyna að ná samkomulagi án árangurs.

„Því miður hafa strangar sóttvarnarreglur á Íslandi undanfarna mánuði, æfinga og keppnisbann, og gríðarlegar kröfur yfirvalda á keppnislið sem koma til landsins, verið okkur íþyngjandi, og í raun gert okkur ókleift að leika á Íslandi. Reglugerð á landamærum Íslands sem kveður á um sóttkví við heimkomu FH liðsins frá Tékklandi er einnig með þeim hætti að ótækt er að taka þátt,” segir í tilkynningu frá FH.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2