fbpx
Fimmtudagur, nóvember 28, 2024
target="_blank"
HeimFréttirJónína Ólafsdóttir er nýr prestur í Hafnarfjarðarkirkju

Jónína Ólafsdóttir er nýr prestur í Hafnarfjarðarkirkju

Umsóknarfrestur um Hafnarfjarðarprestakall, Kjalarnessprófastsdæmi, rann út 9. nóvember s.l. Auglýst var eftir sóknarpresti til þjónustu og miðað við að viðkomandi gæti hafið störf 1. desember eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að ákvörðunum um ráðningu lægi fyrir.

Kjörnefnd kaus í síðustu viku sr. Jónínu Ólafsdóttur, prest á Akranesi, til starfans og hefur starfandi biskup Íslands, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, staðfest ráðningu hennar.

Sr. Jónína Ólafsdóttir er fædd á Egilsstöðum 1984 og ólst upp í Þingeyjarsýslu frá fimm ára aldri. Hún lauk BA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 2008 og mag. theol.-prófi 2017, diplómaprófi í sálgæslu 2019 og vinnur nú að lokaritgerð til MA-prófs í guðfræði á sviði kristinnar hjónabandssiðfræði.

Sr. Jónína hefur starfað sem aðstoðarmaður dr. Arnfríðar Guðmundsdóttur, prófessors. Þá hefur hún fengist við margvísleg störf í söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðin tólf ár.

Sr. Jónína var settur prestur í Dalvíkurprestakalli frá 1. október 2019 til 31. mars 2020. Hún var vígð 11. ágúst 2019. Hún var ráðin í febrúar á síðasta ári sem prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi.

Eiginmaður sr. Jónínu er Eggert Þ. Þórarinsson, forstöðumaður í Seðlabanka Íslands, og eiga þau tvö börn.

Sr. Þórhildur hætt eftir langt og gott starf

Sr. Þórhildur Ólafs, sóknarprestur hefur látið af stöfum eftir langt og gott starf hjá kirkjunni en hún hefur einnig þjónað sem prófastur frá 2015. Var síðasti starfsdagur hennar 30. nóvember. Hún var vígð til prests 16. október 1988.

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prestur í Garðaprestakalli var skipuaður prófstur í Kjalarnessprófastsdæmi frá 1. desember sl.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2