fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirAtvinnulífVilhjálmur Kári þjálfar meistaraflokk Breiðabliks í knattspyrnu

Vilhjálmur Kári þjálfar meistaraflokk Breiðabliks í knattspyrnu

Hafnfirðingurinn Vilhjálmur Kári Haraldsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu. Hann tekur við starfinu af Þorsteini Halldórssyni sem ráðinn var landsliðsþjálfari kvenna á dögunum.

Vilhjálmur verður með öflugt starfslið sér við hlið hjá Íslandsmeisturunum þar sem Ólafur Pétursson er aðstoðar- og markmannsþjálfari, Aron Már Björnsson styrktarþjálfari og Úlfar Hinriksson tæknilegur ráðgjafi. Þeir hafa allir verið í teyminu undanfarin ár.

Þá hefur Kristrún Lilja Daðadóttir verið ráðin þjálfari kvennaliðs Augnabliks og verður Vilhjálmur með henni í teyminu, sem styrkir enn frekar tengslin í yngri flokka starfið innan félagsins.

Vilhjálmur Kári hefur 25 ára reynslu af þjálfun karla og kvenna, bæði hjá FH og Breiðabliki. Þá hefur hann einnig starfað fyrir Knattspyrnusamband Íslands sem leiðbeinandi auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari U17 ára landsliðs kvenna. Vilhjálmur er öllum hnútum kunnugur hjá Breiðabliki, en hann þjálfaði síðast kvennalið Augnabliks. Hann hefur starfað hjá knattspyrnudeildinni síðastliðin tvö ár sem annar af yfirþjálfurum barna- og unglingaráðs með sérstaka áherslu á starfsþróunar- og þjónustumál deildarinnar. Vilhjálmur spilaði sjálfur 69 leiki fyrir Blika á árunum 1993 til 1998.

Þetta kemur framá heimasíðu Breiðabliks.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2