fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMenning og mannlíf2021 útgáfa af Litla Ratleik Hafnarfjarðar - 15 nýir staðir!

2021 útgáfa af Litla Ratleik Hafnarfjarðar – 15 nýir staðir!

Nú er komin út 2021 útgáfa af Litla Ratleik Hafnarfjarðar en fyrsta útgáfan kom út í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ um páskana í fyrra og var ætlað að vera krydd í tilveruna fyrir þá fjölmörgu sem ákváðu að ganga um bæinn þegar sóttvarnarreglur voru lagðar á.

Í leiknum eru 15 staðir sem áhugavert er að skoða og góðir staðir til að koma við á í gönguferðum um bæinn. Leikurinn er í vefútgáfu og auðvelt er að nýta snjallsíma til að lesa fróðleiksmola um staðina en fjöldi mynda eru birtar til að sýna staðina fyrr og nú.

Þátttakendur eru hvattir til að njóta og mega gjarnan bæta við fróðleik og koma með ábendingar.

Rústir gamla Setbergsbæjarins.

Allt sem þarf er snjallsími og að smella á þennan tengil

Svo má líka prenta leikinn út og hafa með sér á göngu.

Skotbyrgið í Mógrafarhæð

Það er Hönnunarhúsið ehf. sem gefur leikinn út í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ – Heilsubæinn Hafnarfjörð en fyrirtækið hefur gefið út hinn vinsæla Ratleik Hafnarfjarðar undanfarinn rúman áratug.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2