fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirAtvinnulífSigurður Nordal er nýr sviðsstjóri stjórnsýslusviðs - 30 sóttu um

Sigurður Nordal er nýr sviðsstjóri stjórnsýslusviðs – 30 sóttu um

Starfaði á árinu 2020 tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Sigurð Nordal í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.

Sigurður starfaði á árinu 2020 tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar og vann þar m.a. að mikilvægum fjárhagslegum greiningum og úttektum. Sigurður mun hefja störf í mars.

Sigurður nam hagfræði við Háskóla Íslands og Columbia háskóla í New York. Hann starfaði hjá Seðlabanka Íslands, bönkum og fjármálafyrirtækjum í ýmsum ábyrgðarstörfum um sextán ára skeið. Sigurður var framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands við flutning hljómsveitarinnar í Hörpu og fyrstu árin í nýju tónlistarhúsi. Þá stýrði hann viðskiptadeild Morgunblaðsins um árabil.

Í tilkynningu segir að Sigurður hafi víðtæka þekkingu og reynslu af rekstri og verkefnum m.a. sveitarfélaga en hann hefur starfað sem ráðgjafi m.a. fyrir opinbera aðila og setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

Alls sóttu 30 um stöðuna.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2