fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkJúlíus Andri stefnir á 4. sætið hjá VG

Júlíus Andri stefnir á 4. sætið hjá VG

Hafnfirðingurinn Júlíus Andri Þórðarson hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram í 4. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi í rafrænu forvali sem fram fer daganna 15. til 17. apríl.

Til hagsbóta fyrir stjórnmál að hafa fólk með fjölbreytilegan bakgrunn sem er tilbúið er að leggja sitt af mörkum til að stuðla að réttlátu og jöfnu samfélagi

„Ég er 31 árs Hafnfirðingur sem ættleiddur er frá Rúmeníu. Sem barn bjó ég í Bretlandi og Belgíu. Þessa stundina stunda ég BA nám við Háskólann á Bifröst í miðlun og almannatengslum og eru áætluð námslok næsta vetur. Samhliða námi vinn ég sem stuðningsfulltrúi á starfsbraut við Flensborgarskólann í Hafnarfirði.

Mín þátttaka innan Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs byrjaði í sveitarstjórnarkosningunum árið 2014, en þá skipaði ég 4. sæti listans í Hafnarfirði. Á sveitarstjórnarstigi sat ég sem aðalmaður í skipulags- og byggingarráði, varamaður í fjölskylduráði og ýmsum starfshópum auk þess að vera varabæjarfulltrúi í eitt ár. Ég er jafnframt formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Hafnarfirði. Ég býð mig fram í forvalinu þar sem ég tel að það sé til hagsbóta fyrir stjórnmál að hafa fólk með fjölbreytilegan bakgrunn sem er tilbúið er að leggja sitt af mörkum til að stuðla að réttlátu og jöfnu samfélagi í þágu og umboði heildarinnar.

Á næsta kjörtímabili tel ég að leggja eigi sérstaka áherslu á að viðhalda og verja menntakerfið eftir mikið og skiljanlegt útgjaldaár ríkisins vegna COVID-19. Það er mitt mat að ekki megi ráðast í niðurskurð í menntakerfinu enda væri það ekki best til þess fallið að endurreisa efnahag þjóðarinnar á ný. Menntakerfið verður að hafa nægilegan stuðning og bolmagn, þannig verður hægt að ýta undir aukna þekkingu og frekari nýsköpun hér á landi á næstum misserum.

Í starfi mínu sem stuðningsfulltrúi hef ég séð og upplifað hæðir og lægðir í menntakerfinu á ýmsum stigum. Undanfarið ár hef ég einnig setið sem fulltrúi Nemendafélagsins við Háskólann á Bifröst í fulltrúaráði Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS). Þetta tvennt hefur fengið mig til þess að velta betur fyrir mér menntakerfinu hér á landi. Það þarf að verja og styrkja menntakerfið á öllum stigum með hag kennara, starfsmanna og nemenda í huga. Tryggja þarf jafnrétti til náms, bæði bóknám og iðnnám, allra þeirra sem vilja sækja sér menntun óháð efnahagslegum eða félagslegum bakgrunn.

Ákveðin markaðsvæðing innan menntakerfisins hér á landi hefur átt sér stað undanfarin nokkur ár. Það er á ábyrgð stjórnvalda að tryggja að menntun verði ekki að einhverri söluvöru, menntun á að vera leið til aukins máttar og framþróunar einstaklinga og samfélagsins í heild.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2