fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirSkólum lokað og 10 manna fjöldatakmörkun frá miðnætti - Uppfært

Skólum lokað og 10 manna fjöldatakmörkun frá miðnætti – Uppfært

Ríkisstjórnin hefur tilkynnt hertar aðgerðir til að sporna við auknum Covid-19 smitum sem gilda frá miðnætti og næstu þrjár vikur.

Helstu reglur sem taka gildi á miðnætti:

Nándarregla verður áfram 2 metrar og reglur um grímuskyldu óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir. Börn í leikskólum eru undanþegin 2 metra reglunni og fjöldatakmörkunum.

  • Almennar fjöldatakmarkanir 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.
  • Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum við athafnir. Þeir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri en þurfa ekki að sitja í númeruðum sætum. Gestum er skylt að nota andlitsgrímur og tryggja skal 2 metra regluna. Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er 10 manns.
  • Sund- og baðstaðir lokaðir.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar lokaðar.
  • Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.
  • Sviðslistir og sambærileg starfsemi, svo sem bíó, er óheimil.
  • Skemmtistaðir, krár, spilasalir og spilakassar lokaðir.
  • Ökunám og flugnám með kennara óheimilt.
  • Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 22, með að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru númeruð. Vínveitingar skal bera til sitjandi viðskiptavina. Heimilt er að taka á móti nýjum gestum til kl. 21.00.
  • Verslanir mega taka á móti 5 einstaklingum á hverja 10 m² að hámarki 50 manns. 20 starfsmenn mega vera í sama rými og viðskiptavinir. Tveggja metra nándarregla og grímuskylda.
  • Starfsemi hársnyrtistofa, snyrtistofa og sambærileg starfsemi verður áfram heimil.

Skólahald

Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað frá og með morgundeginum og þar til hefðbundið páskafrí tekur við. Unnið verður að reglum um fyrirkomulag skólahalds að loknu páskafríi á næstu dögum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2