fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttir14 verkefni deildu með sér 2,9 milljónum kr. menningarstyrkjum

14 verkefni deildu með sér 2,9 milljónum kr. menningarstyrkjum

Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir á síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 14 verkefni styrk að þessu sinni.

Menningarstyrkir eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum.

Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.

Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er 2,9 milljónir. Samtals verður úthlutað 11 milljónum í formi menningarstyrkja á árinu 2021.

Er þá með taldir samstarfssamningar vegna Hjarta Hafnarfjarðar, Sönghátíðar í Hafnarborg, Víkingahátíðar á Víðistaðatúni, HEIMA hátíðarinnar og vegna tónleikahalds Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.

Eftirtöldum styrkjum var úthlutað:

  • 250.000 kr.  Síðdegistónar í Hafnarborg veturinn 2021-2022 (Andrés Þór Gunnlaugsson)
  • 400.000 kr.  Valdefling kvenna í fjölmenningarsamfélagi í gegnum listferðalag milli byggðarlaga (Hafnarfjarðarhluti) í samstarfi við Bókasafns Hafnarfjarðar
  • 250.000 kr.  Til hamingju með afmælið Kór Öldutúnsskóla! Barnarómur í 55 ár
  • 200.000 kr.  70 ára afmæli Fimleikafélagsins Bjarkar – sögusýning og viðburðir
  • 400.000 kr.  Óskastund í Hafnarfirði (Guðmundur R. Lúðvíksson)
  • 180.000 kr.  Sumarsirkus Hringleiks 2021
  • 205.000 kr.  Straumur – Inga Björk & hljómsveit
  • 150.000 kr.  Leikarinn sem skapandi listamaður (Leikfélag Hafnarfjarðar)
  • 180.000 kr.  Það er bjart framundan (Ungmennahúsið Hamarinn)
  • 200.000 kr.  Bossa Nova Tríó Ragga Jóns – tónleikar
  • 160.000 kr.  Ljúfir tónar vítt um bæinn (Rebekka Sif Stefánsdóttir)
  • 100.000 kr.  Tónafljóð í Hellisgerði (Selma Hafsteinsdóttir)
  • 150.000 kr.  Dúettinn Lygna sækir íbúa Sólvangs og Hrafnistu heim
  • 75.000 kr.    Vorsýning í Soffía vinnustofa & gallerí

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2