fbpx
Sunnudagur, nóvember 24, 2024
target="_blank"
HeimFréttirUmmerki um akstur stórs jeppa við Helgafell

Ummerki um akstur stórs jeppa við Helgafell

Áberandi hjólför eru eftir stóran jeppa eða annað farartæki á göngustígum S-A Helgafells og við Valahnúka og út á Víghólinn.

Er mjög óvenjulegt að sjá ummerki um akstur bíla á þessu svæði enda allur utanvegaakstur bannaður.  Fjarðarfréttir hefur enga vitneskju um framkvæmdir á þessu svæði sem kalla á slíkan akstur.

Hjólförin

Sífellt fleiri sjást á ferð á stígum á og við Helgafell og Valahnúka þó flestir virðast fara á fjallið og sömu leið til baka. Stígarnir eru flestir aðeins slóðar eftir gangandi fólk og í sumum tilfellum gamlir löngu aflagðir jeppaslóðar. Virðist fólki í flestum tilfellum líka aðstæður vel en sums staðar eru djúpir skorningar og drulla þar sem bera þyrfti í.

Djúpar skorningar í gönguslóðanum við Helgafell.

Einstaka dæmi eru um akstur vélhjóla sem markað hafa djúp spor í slóðann en jafnvel reiðhjól geta skemmt slóðana þar sem moldarkennt er og frost er að fara úr jörðu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2