fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirLionsklúbbur styrkti starf sporhundanna rausnarlega

Lionsklúbbur styrkti starf sporhundanna rausnarlega

Félagar í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar færðu í síðustu viku Björgunarsveit Hafnarfjarðar eina milljón króna styrk.

Er styrknum ætlað að styðja við starf sporhundastarfs sveitarinnar en sveitin er nú með tvo sporhunda og eru það einu sérþjálfuðu sporhundar landsins.

Nokkrir Lionsfélaganna.

Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hefur verið dyggur stuðningsaðili sveitarinnar og styrkt sporhundastarfið myndarlega á liðnum árum.

Þórir Sigurhansson með sporhundinn Pílu.

Þórir Sigurhansson, sporhundaþjálfari, kynnti félagsmönnum Lionsklúbbs Hafnarfjarðar fyrir nýjasta sporhundi sveitarinnar, henni Pílu. Píla var nokkuð feimin í kringum allt umstangið, en hún sýndi þeim sínar bestu hliðar.

Gísli J. Johnsen, formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, Þórir Sigurhansson, hundaþjálfari, Magnús Ingjaldsson, formaður verkefnanefndar og Haraldur Benediktsson, formaður Lionsklúbbs Hafnarfjarðar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2