fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimKynningLemon og Telma Matthíasdóttir í samstarfi um ferskar nýjungar

Lemon og Telma Matthíasdóttir í samstarfi um ferskar nýjungar

Það er loksins komið sumar og lífið er sætt og gott. Þannig á það líka að vera og eftir langan vetur eigum við skilið að eiga sólríkar og sælar stundir.

„Það er einfaldlega bráðnauðsynlegt fyrir bæði líkama og sál sem er einmitt það sem við á Lemon hugum að á hverjum degi. Mantran okkar er að bjóða ferskan og safaríkan mat, úr besta mögulega hráefni, fyrir þá sem vilja huga að heilsunni og njóta þess besta sem lífið hefur að bjóða,“ segir Unnur Guðríður Indriðadóttir hjá veitingastaðnum Lemon.

„Og til þess að standa við stóru orðin og fylgja þér inn í sumarið leituðum við til sólargeislans Telmu Matthíasdóttur, eiganda Bætiefnabúllunnar og fitubrennsla.is, í leit að sumarlegum og spennandi nýjungum.“

Telma hefur lengi verið á meðal vinsælustu einkaþjálfara landsins og unnið markvisst að því að bæta líf og heilsu landsmanna. Aðspurð segir hún að það hafi aldrei verið spurning um að taka þátt í þessu sumarlega verkefni með Lemon. „Á Lemon fæ ég þá orku og næringu sem ég þarf fyrir líkamann. Auk þess er ég dugleg að sækja þangað mat fyrir starfsfólk Bætiefnabúllunnar því góð næring gefur ekki bara góða orku heldur bætir hún alla starfsemi líkamans og lífið.“

Nú er komið að því að Sælkerasjeikar Telmu hafa litið dagsins ljós á Lemon. Þetta eru fjórir próteinsjeikar hver öðrum bragðbetri, sumarlegri og fádæma góðir fyrir heilsuna. Þeir kallast Pink Magic, Home Run, Happy Time og Call me Crazy og eru allir stútfullir af fersku, fyrsta flokks hráefni frá Lemon og próteini frá Bætiefnabúllunni. Allir eru sjeikarnir macros vænir fyrir þá sem vilja telja kolvetni, prótein og fitu. Það gerist ekki betra.

Það er því tilvalið að koma við á Lemon í sumar, hvort sem er eftir æfinguna, í hádeginu eða á rúntinum, njóta þess bragðbesta og hollasta sem sumarið hefur að bjóða og gera vel við líkama og sál. Við hlökkum til að sjá þig og lofum að taka vel á móti þér.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2