![Lítið sem ekkert var eftir í grænmetisgarðinum. Mynd: Aðsend](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/08/Matjurtagarður-þjófnaður-1-169x300.jpg)
Vonbrigðin voru gríðarleg hjá ungu pari í morgun sem hafði í sumar plantað grænmeti og sett niður kartöflur í matjurtagörðunum sem Hafnarfjarðarbær er með við Kaldárselsveg. Eftir að hafa hugsað vel um garðinn sinn í sumar ætluðu þau að fara að huga að garðinum er þau uppgötvuðu að búið var að taka upp allar kartöflurnar og næstum allt grænmetið!
![Kartöflugarðurinn var alveg tæmdur](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/08/Matjurtagarður-þjófnaður-2-169x300.jpg)
Hver garður er merktur og því ólíklegt að óvart hafi verið tekið upp úr vitlausum garði.
Unga konan segist hafa orðið alveg öskuill og svekkt. Var þetta í fyrsta sinn sem þau ræktuðu grænmeti enda nýlega farin að búa.
Aðrir ræktendur sem fréttu af þessu drifu sig í að taka upp sína uppskeru.
Ef einhver getur gefið upplýsingar um það hver hafi tekið upp úr görðum merktum 27 er viðkomandi hvattur til að láta lögreglu vita.
![Matjurtagarðarnir við Kaldárselsveg.](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/08/matjurtagarður-þjófnaður-01-1024x682.jpg)