fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirKraftmikið leikár að hefjast hjá Gaflaraleikhúsinu

Kraftmikið leikár að hefjast hjá Gaflaraleikhúsinu

Leikárið í Gaflaraleikhúsinu hefst með krafti í dag með hinni glæsilegu uppistands- og tónlistarsýningu Bíddu Bara eftir stjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur.

„Sýningin sem er sannkölluð hlátursprengja fyrir glaðsinna grindarbotna  fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frústrasjónir, uppeldi, kvíða og hvítvín. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið á sinni eigin reynslu og draga ekkert undan en ljúga helling,“ segir Lárus Vilhjálmsson leikhússtjóri um sýninguna.

Langelstur að eilífu með Sigurð Sigurjónsson í aðalhlutverki

Í október hefjast svo æfingar á leikgerð Bjarkar Jakobsdóttur á bók Bergrúnar Íris Sævarsdóttur Langelstur að eilífu sem fjallar um Eyju sem er 6 ára og er að byrja í 1. bekk og besta vin hennar og bekkjarfélaga Rögnvald sem er 96 ára. Einstaklega skemmtileg og  falleg saga um vináttu, gleði og sorg.

Með hlutverk Rögnvaldar fer Sigurður Sigurjónsson sem er án efa einn af ástsælustu gamanleikurum Íslands og Hafnfirðingur að auki. Í lok september fara síðan fram prufur í Gaflaraleikhúsinu til að finna sex 7-10 ára snillinga til að leika börnin í verkinu. Prufur verða auglýstar síðar og skráning fer fram á gaflarar@gaflaraleikhusid.is. Fylgist með. Áætluð frumsýning á verkinu er í byrjun árs 2022.

Drottningin sem kunni allt nema að..

Í janúar 2022 hefjast síðan æfingar á nýju verki eftir Gunnar Helgason sem heitir Drottningin sem kunni allt nema að… . Þar fær Gunnar í lið með sér Bernd Ogrodnik og Rán Flygenring til að skapa ógleymanlega veröld fyrir yngstu áhorfendurna. Fyrirhugað er að frumsýna verkið í byrjun mars.

Sviðslistar- og höfundanámi fyrir ungt fólk

Gaflaraleikhúsið hefur staðið fyrir öflugu sviðslistar- og höfundanámi fyrir ungt fólk um árabil. Nú í haust fer leikhúsið inn á nýjar lendur í þeim efnum og mun bjóða upp á undirbúningsnám fyrir ungt sviðslistafólk sem stefnir á framhaldsnám í listum

Kennarar verða Björk Jakobsdóttur leikkona, höfundur og leikstjóri, Chantelle Carey danshöfundur og Guðlaug Ólafsdóttir söngkennari. Bæði Guðlaug og Chantelle hafa unnið með fjölda ungmenna í hinum ýmsu söngleikjum í Borgarleikhúsinu  og Þjóðleikhúsinu.  Björk hefur undanfarin 10 ár sett á svið og samið fjölda verka og söngleikja í höfundasmiðju með ungmennum sem að notið hafa mikilli vinsælda Kennt verður í tveim önnum í vetur og seinni önn lýkur með söngleik sem verður frumsýndur í júní.

Einungis verður pláss fyrir 24 nemendur. Inntökupróf í skólann fara fram um miðjan september og verða auglýst fljótlega

Erfiðleikar vegna Covid-19

Lárus segir Covid-19 faraldurinn hafi reynst Gaflaraleikhúsinu erfiður eins og öllum öðrum leikhópum og leikhúsum vegna harðra samkomutakmarkana og það hafi verið afar sárt að þurfa hætta sýningum á vinsælustu sýningu leikhússins til þessa, Mömmu Klikk.

Lárus Vilhjálmsson leikhússtjóri

„Leikhúsið lenti utan þeirra stuðningsaðgerða sem ríkið veitti atvinnulífinu í landinu vegna þess að það er óhagnaðardrifið en Sviðslistarráð kom leikhúsinu til bjargar með myndarlegum fjárstuðningi til tveggja ára. Þetta hleypti nýju lífi í starf leikhússins á þessu ári og í framhaldinu var ákveðið að æfa upp á ensku hina gríðarvinsælu sýningu Fyrsta Skiptið sem sannarlega náði til ungs fólks þegar hún var sýnd 2017-18 og halda í útrás. Sýningin var síðan sýnd í júní undir nafninu My First í Unicorn leikhúsinu í London við frábærar viðtökur og er nú í sýningum á Edinburgh Fringe hátíðinni sem er núna á netinu vegna Covid. Í september er My First boðið að vera opnunarsýningin á Alþjóðlegri leiklistarhátíð Assitej í Kristiansand í Noregi en hún var valin úr hópi 80 alþjóðlegra sýninga.“

Brúðusýning um Bakkabræður

Gaflaraleikhúsið reynir á meðan húsrúm leyfir að vera í góðu samstarfi við aðra sjálfstætt starfandi leikhópa og nú í september verður sýnd bráðfjörug  brúðusýning um Bakkabræður í leikstjórn Sigurþórs Heimissonar og leik og brúðustjórn Elfars Loga Hannessonar, með fallegri tónlist Björns Thoroddsen sem er flutt af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Þetta er samstarfsverkefni Gaflaraleikhússins og  Kómedíuleikhússins á Vestfjörðum fyrir börn á öllum aldri.

„Leikárið hjá Gaflaraleikhúsinu sýnir að leikhúsið ætlar sér að vera áfram í fremstu röð leikhúsa fyrir unga áhorfendur á Íslandi. Þökk sé Hafnarfjarðarbæ og Sviðslistaráði og okkar ástkæru áhorfendum lítum við björtum augum til framtíðar,“ segir Lárus Vilhjálmsson leikhússtjóri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2