Á síðustu árum hefur margt áunnist fyrir sakir þeirrar stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Frá árinu 2013 hefur efnahagsstefna flokksins verið grundvöllur ríkisfjármálanna. Við höfum lækkað skatta án þess að skerða þjónustu. Við höfum stóraukið gagnsæi í ríkisfjármálum með birtingu og betri framsetningu gagna, til dæmis í gegnum vefina tekjusagan.is og opinberumsvif.is. Við höfum sett af stað stórsókn í rafrænni stjórnsýslu og viljum gera enn meira í þeim málum, í þágu borgaranna. Ríkið á að veita borgunum góða þjónustu, gera hana aðgengilegri, hagkvæmari, einfaldari og fljótvirkari. Þannig nýtum við skattfé almennings betur.
Öflugt atvinnulíf er grundvöllur öflugrar velferðar. Verðmætasköpunin sem stendur undir rekstri ríkissjóðs verður til í atvinnulífinu, fyrir tilstilli fólksins í landinu. Skattfé verður ekki til í ráðuneytum eða ríkisstofnunum. Öflug atvinnulíf er þannig forsenda þess að hér sé rekið öflugt velferðarkerfi og öflugt öryggisnet til handa þeim sem þurfa á því að halda. Hvetjandi umhverfi leiðir af sér aukna hagsæld fyrir samfélagið allt og eykur lífsánægju fólks. Það er allra hagur.
Núverandi ástand í atvinnumálum þeirra sem teljast eldri borgarar er óásættanlegt. Það er óásættanlegt að ein tala segi til um það hvenær einstaklingur telst ekki lengur ákjósanlegur þátttakandi á vinnumarkaði. Það er óásættanlegt að einstaklingar sem hafa áhuga á að vinna lengur en til 67 ára geti ekki gert það nema með verulegri skerðingu á afkomu. Þessu viljum við breyta. Tillögur Sjálfstæðisflokksins í ellilífeyrismálum, þar sem hækkun á frítekjumarki er fyrsta skref, eru raunhæfar og eftirsóknarverðar. Endurskoðun kerfisins samkvæmt þessum sömu tillögum mun svo tryggja afkomuöryggi þeirra sem ekki eiga sterk lífeyrisréttindi. Þær gera eldri borgurum kleift að vera lengur á vinnumarkaði óski þeir þess. Þær efla sjálfsákvörðunarréttinn og auka frelsi þeirra til eigin ákvarðana og athafna.
Setjum X við D og tryggjum áframhaldandi stöðugleika og jákvæðar breytingar. Þannig höldum við áfram að gera Ísland að landi tækifæranna.
Sigþrúður Ármann
skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.