fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitík„Nú meikarðu það Gústi“

„Nú meikarðu það Gústi“

Finnst vel við hæfi að heiti þessarar greinar vísi í dægurlagatexta sem Bjartmar Guðlaugsson samdi fyrir ein­hverj­um árum síðan. Lagið sem fjallar um Gústa sem ætlar að gera það gott.

Ágúst Bjarni Garðarsson skipar annað sætið á lista Framsóknar í suðvestur kjördæmi. Það yrði mikill fengur fyrir Alþingi Íslend­inga að fá Gústa á þing. Sem stendur er Framsókn með einn mann í kjördæminu og flestar skoð­anakannanir benda til að Framsókn haldi þeim manni. Einstaka könnun hefur sýnt Framsókn með tvo menn inni og við þurfum á þínum stuðningi að halda til að ná því. Við þurfum mann eins og Ágúst Bjarna á þing.
Sem bæjarfulltrúi í Hafnarfirði hefur hann látið að sér kveða svo um munar. Hann setur sig inn í öll mál og fylgir þeim eftir, heimsækir vinnustaði og íbúa, hlustar á fólkið og vinnur að heilindum fyrir bæjarfélagið.

Fyrir rúmum fjórum árum hafði hann samband við mig og spurði hvort ég vildi ekki bjóða mig fram fyrir Framsókn í Hafnarfirði. Ég tók mér smá umhugs­unarfrest en ákvað að slá svo til. Ákvörðun sem ég sé ekki eftir. En um leið og ég hafði sagt já þá kynntist ég öðrum Gústa en ég hafði þekkt áður. Kynntist stjórn­mála­manninum Ágústi Bjarna sem hefur skýra sýn á samfélagið. Það væri efni í langa grein ef ég ætlaði að nefna allt sem hann stendur fyrir en verð þó að nefna sérstaklega málefni fjölskyldunnar. Hann setur fjölskylduna í fyrsta sæti og hvikar hvergi frá þeim mark­miðum sínum að létta undir með fjölskyldum hvort sem það er að létta greiðslubyrði á fjölskyldur, styðja við öryrkja og bæta hag þeirra, búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld eða aðstoða þá sem minnst mega sín í samfélaginu. Gústi hefur einlægan áhuga á fólki og vill vinna fyrir það. Hann hefur gert það frábærlega í þessi tæpu 4 ár í bæjar­málunum en óskar núna eftir þínum stuðn­ingi til að gera slíkt hið sama á landsvísu.

Hann hefur stefnt á þennan starfsvettvang í mörg ár. Hann starfaði í fimm ár sem aðstoðarmaður ráðherra áður en hann fór í bæjarmálin en nú er komið að næsta skrefi, Alþingi Íslendinga.

Tryggjum Gústa góða kosningu þann 25. september næstkomandi. Setjum X við B

Valdimar Víðisson
situr í 11. sæti á lista Framsóknar í Suðvesturkjördæmi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2