Nýtt hafnfirskt fyrirtæki, Hoobla ehf. hefur starfsemi sína í dag, 22. september.
Hoobla er nýr valkostur þegar kemur að verkefnabundnum ráðningum á Íslandi. Það er klasasamfélag þar sem sjálfstætt starfandi ráðgjafar, stjórnendur, sérfræðingar, fyrirlesarar, stjórnenda- og markþjálfar o.fl. bjóða fram þjónustu sína til fyrirtækja og stofnana.
Stofnandi Hoobla er Hafnfirðingurinn Harpa Magnúsdóttir, fyrrum mannauðsstjóri hjá ORF Líftækni hf. Harpa brennur fyrir að gera Hoobla að sterkum bakhjarli fyrir fólk sem starfar sjálfstætt á verkefnadrifnum vinnumarkaði
„Þjónustan er sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins. t.d. getur Hoobla sett saman teymi þar sem við á, fundið réttan úrvinnsluaðila sem býr yfir þekkingu á ákveðnum málaflokki, boðið er upp á greiningu, úrvinnslu, verkefnastjórnun, fræðslu, fyrirlestra o.fl. sem getur bætt frammistöðu einstaklinga, teyma og skipulagsheildarinnar allrar. Það getur reynst rekstrareiningum vel að geta leitað tímabundið til reyndra stjórnenda og sérfræðinga sem geta stigið tímabundið inn í aðstæður í fyrirtækjum og stofnunum til að brúa erfið tímabil eða leysa tímabundin verkefni sem geta komið upp í rekstrinum. Það má segja að með Hoobla verði til markaðstorg þekkingar,“ setir Harpa.
„Ég held að þetta sé fullkominn tími til að stofna klasafyrirtæki fyrir sjálfstætt starfandi sérfræðinga,“ segir Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla. „Hoobla leggur upp með að vera með gott viðskiptamódel sem laðar að sér sjálfstætt starfandi aðila sem eru einir í harkinu og vilja vinna undir eigin vörumerki. Þeir aðilar sem vinna með Hoobla kjósa að eiga samfélag við aðra, vilja getað speglað sig og jafnvel átt samstarf með öðrum sem taka að sér sambærileg verkefni. Einnig sækjast þessir aðilar eftir að fá markaðslegan stuðning og hafa aukna ásýnd í krafti fjöldans.“
Harpa segir að rannsóknir sýni að þeim einstaklingum er að fjölga sem vilja vinna sjálfstætt án þess að vera með fastráðningu í fyrirtækjum eða stofnunum. Vinnumarkaðurinn sé að breytast hratt í átt að meiri sveigjanleika og minni formfestu. Óhefðbundið ráðningaform af ýmsu tagi og verkefnabundin vinna sem oft er óstaðbundin verði sífellt algengara fyrirkomulag í atvinnusambandi og fólk sé ýmist að taka að sér hliðargigg meðfram föstu starfi annarsstaðar eða er alfarið í sjálfstæðum rekstri. „Hoobla vill aðstoða fyrirtæki og einstaklinga í að gera hlutina einfaldari í því sambandi,“ segir Harpa
Einnig sýni rannsóknir að mörgum Giggurum (sem er nafn yfir þá sem taka að sér tímabundin verkefni) reynist erfitt að hafa ekki félagslega þáttinn sem fæst með því að starfa innan stærri skipulagsheilda, þ.e. sakni félagslegrar speglunar, félagslífs og umgjarðar.
Harpa segir yfirbyggingu hjá Hoobla vera minni en hjá hefðbundnum fyrirtækjum, þar sem allir sem starfa með Hoobla séu sjálfstæðir í sínum rekstri. „Við erum ekki með húsnæði sem hýsir starfsemina, við hittumst bara reglulega á mismunandi stöðum og höldum Hooblafundi og skemmtanir þar sem hentar best hverju sinni. Hoobla stendur nefnilega fyrir gleði, hamingju, kæti og síðast en ekki síst…. HÚRRA!,“ segir Harpa.