fbpx
Sunnudagur, nóvember 17, 2024
target="_blank"
HeimFréttirLandsátakið „Syndum“ hófst í dag

Landsátakið „Syndum“ hófst í dag

Syndum í kringum Ísland

Syndum, landsátak í sundi hófst með formlegum hætti í hádeginu í dag í Laugardalslaug.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til að hreyfa sig með því að synda saman  hringinn í kringum Ísland.

Skráðu þig og sundmetrana á syndum.is

Landsmenn skrá sig og metrana sem þeir synda á forsíðu syndum.is  Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.

Í Laugardalslaug í dag fluttu ávörp, Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands. Andri hvatti viðstadda til að nota sund sem daglega hreyfingu og minnti á að sund er frábær hreyfing og fjölskyldusamvera.

Björn þakkaði ÍSÍ fyrir að koma þessu verkefni af stað og benti á að sund hefur mikla sérstöðu á Íslandi og skipar stóran sess í huga landsmanna. Sund er góð hreyfing fyrir alla.  Björn benti jafnframt á öflugt starf sundfélaga á Íslandi og að nú væru þrír fulltrúar Íslands á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 m laug sem hófst í Kazan í morgun, þau Snæfríður Sól Jórunnardóttir og SH-ingarnir Anton Sveinn McKee, og Steingerður Hauksdóttir.

Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ

Landsátak sem stendur yfir 1.-28. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 28. nóvember. Syndum er heilsu- og hvatningarátak og höfðað er til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.

Sund er heilsubætandi og góð leið til að styrkja hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er jafnframt skemmtileg tómstundariðja. Þetta átak er framhald af Íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Skráning

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í „Mínar skráningar“.

Einfalt er að   velja   sér   notendanafn   og   lykilorð   og skrá   síðan sínar   sundvegalengdir.

Þeir  sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða  dregnir  út  og vinna veglega  vinninga.

Á  heimasíðu Syndum, syndum.is, eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss  annars fróðleiks og upplýsinga um sundlaugar landsins.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2