fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirVilja m.a. hámarksútsvarsprósentu og niðurgreiðslu á strætókortum í Hafnarfirði

Vilja m.a. hámarksútsvarsprósentu og niðurgreiðslu á strætókortum í Hafnarfirði

Tíu tillögur Samfylkingar, þar af tvær sameiginlegar með Bæjarlistanum

Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista lögðu til við framlagningu tillögu að fjárhagsáætlun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað að útsvarsprósenta verði 14,52% sem er hámark skv. lögum. Áætlað er skv. tillögu að fjárhagsáætlun að útsvarsprósentan verði óbreytt, 14,48%.

Í greinargerð með tillögunni segir að vinna við gerð fjárhagsáætlunar sýni að grunnrekstur sveitarfélagsins á árinu 2022 verður þungur. Lögbundin verkefni sveitarfélaga séu fjölmörg og sífellt bætist við þau verkefni sem þeim beri að sinna. Útsvarið sé veigamesti tekjustofn sveitarfélaga og mikilvægt að það sé nýtt til að styrkja stöðu bæjarsjóðs. Hámarksnýting hafi ekki mikil áhrif á hvern bæjarbúa á mánaðargrundvelli (um 200-400 kr. á meðallaun) en bæjarsjóð muni sannarlega um þá fjármuni sem um ræðir (áætlað um 55-60 milljónum kr.).

Tillögunni var vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

Aukið verði við stöðugildi fjölmenningarfulltrúa

Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista lögðu einnig til að aukið verði við stöðugildi fjölmenningarfulltrúa úr 50% í 100%.

Segir í greinargerð með tillögunni að á fundi fjölskylduráðs þann 5. nóvember sl. hafi sama tillaga verið lögð fram en hafnað af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra. Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista telji hins vegar brýnt að bæjarstjórn taki afstöðu til málsins, enda hafi ekki allir flokkar atkvæðisrétt á fundum fjölskylduráðs.

Nauðsynlegt sé að efla starf fjölmenningarfulltrúa frá því sem nú er til þess að styðja við það mikilvæga starf sem hann sinni. Við gerð síðustu fjárhagsáætlunar óskaði fjölmenningarráð eftir því að stöðugildi fjölmenningarfulltrúar yrði aukið úr 50% í 100% en meirihlutinn hafnaði þeirri tillögu. Telja fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista mikilvægt að efla þessa starfsemi hjá bæjarfélaginu og leggi því tillöguna fram í bæjarstjórn fyrir fjárhagsáætlun 2022 og óska eftir að bæjarstjórn taki afstöðu til hennar.

Úttekt á á fólksfækkun í Hafnarfirði

Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu til að úttekt verði gerð á þeirri fólksfækkun sem hefur átt sér stað í Hafnarfirði síðustu misseri. Í því felist að kortleggja hvaða hópar séu einkum að flytja úr bænum, hvers konar húsnæði vanti og hvar séu tækifæri til uppbyggingar í landi Hafnarfjarðar. Með hliðsjón að úttektinni verði farið í átak að efla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði.

„Í tölum Þjóðskrár kemur fram að íbúum hefur fækkað frá árinu 1. des. 2019 til 1. september 2021 um 312. Þetta er í fyrsta skiptið í 80 ár sem íbúum Hafnarfjarðar fækkar, en á sama tíma fjölgaði íbúum í nágrannasveitarfélögunum um 1,1-3,4%. Samkvæmt áætlunum aðalskipulags er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi að lágmarki um 1,2% (335-445 íbúa) á ári fram til ársins 2040. Ljóst er að það þarf að lyfta grettistaki til að snúa þessari þróun við og vinna til baka umrædda fækkun, segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

Samgöngusamningar bæjarstarfsmanna

Fulltrúar Samfylkingarinnar endurfluttu tillögu um að Hafnarfjarðarbær bjóði starfsfólki sínu upp á  samgöngusamninga.

„Í kjölfar tillögu frá fulltrúum Samfylkingarinnar um samgöngustyrki sem lögð var fram í bæjarstjórn sumarið 2018 var sett af stað tilraunaverkefni hjá Hafnarfjarðarbæ sem ekki hefur verið fylgt frekar eftir. Samgöngusamningar hafa hins vegar verið teknir upp í fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum, ásamt m.a. Reykjavíkurborg, með góðum árangri. Áhersla á lýðheilsu á að vera forgangsmál og mikilvægt að heilsubærinn Hafnarfjörður sýni gott fordæmi með því að bjóða starfsfólki sínu samgöngusamninga og hvetja þannig til umhverfisvænni ferðamáta,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

Leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla

Fulltrúar Samfylkingarinnar endurfluttu tillögu um uppbyggingu leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla.

„Frá því að annar tveggja leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla var lagður niður hafa fulltrúar Samfylkingarinnar lagt til að hafist verði handa við uppbyggingu nýs leikskóla í hverfinu. Síðustu ár hefur mest skort á leikskólapláss í þessu skólahverfi og foreldrar þurft að keyra börn sín í önnur skólahverfi til að sækja leikskóla. Það er fyrirséð að með breytingum á aldurssamsetningu vegna endurnýjunar í hverfinu og aukinni íbúðauppbyggingu muni þörfin á leikskólaplássum síst fara minnkandi. Það er því mikilvægt að horfa til framtíðar.

Því leggja fulltrúar Samfylkingarinnar aftur fram tillögu um að hafist verði handa við uppbyggingu á leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla hið fyrsta. Leikskólar eiga að að vera hluti af nærþjónustu og börnum að standa til boða leikskólapláss í sínu hverfi. Sem fjölskylduvænt samfélag ætti Hafnarfjörður að sjá hag í því að vinna að þessu markmiði og styðja þannig um leið við hugmyndir um þéttingu byggðar og umhverfissjónarmið,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til umfjöllunar í fræðsluráði og umhverfis- og framkvæmdaráði.

Ráðning forvarnarfulltrúa

Fulltrúar Samfylkingarinnar endurfluttu tillögu um að ráðinn verði forvarnarfulltrúi í fullt starf.

„Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að ráðinn yrði forvarnarfulltrúi. Það hefur ekki verið gert en verkefnum forvarnarfulltrúa bætt á störf fagstjóra frístundar. Þann 16. júní sl. var einnig ákveðið að stofna faghóp sem myndi fylgjast með forvarnarmálum tengdum börnum og unglingum í Hafnarfirði, safna upplýsingum, veita stuðning og samræma aðgerðir. Þetta eru vissulega skref í rétta átt en engu að síður er mikilvægt er að styðja við þessar aðgerðir með ráðningu forvarnarfulltrúa og tryggja þannig forræði á málaflokknum og samfellu í öllu forvarnarstarfi,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til umfjöllunar í fræðsluráði.

Starfsemi ungmennahúsa verði efld

Fulltrúar Samfylkingarinnar endurfluttu tillögu um að starfsemi ungmennahúsa í Hafnarfirði verði efld.

„Við umræðu um fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að starfsemi ungmennahúsa í Hafnarfirði yrði efld með fjölgun stöðugilda. Sú tillaga var felld af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja fulla ástæðu til að endurflytja þessa tillögu nú, enda hefur á síðustu misserum komið í ljós hversu mikilvægt er að huga að andlegri líðan ungs fólks, ekki síst í miðri glímunni við heimsfaraldur Kórónuveirunnar. Ungmennahúsin bjóða upp á tómstundir við hæfi ungs fólks ásamt því að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi þar sem áhersla er lögð á fjölbreytileika og að allir upplifi sig velkomna.

Í þessu ljósi er mikilvægt að fjölga stöðugildum og auka rekstrarfé til ungmennahúsanna Hamarsins og Músík og Mótor svo efla megi starf þeirra enn frekar,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni va vísað til frekari umfjöllunar í fræðsluráði og íþrótta- og tómstundanefnd.

Niðurgreiðsla á strætókortum

Fulltrúar Samfylkingarinnar endurfluttu tillögu um niðurgreiðslu á strætókortum fyrir börn að 18 ára aldri.

„Mikilvægt er að jafna og auðvelda aðgengi ungmenna að tómstundum. Niðurgreidd stætókort hvetja einnig til aukinnar notkunar á almenningssamgöngum og styðja þannig við umhverfissjónarmið. Kostnaðarmat hefur áður verið gert og leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að það verði uppfært og tillagan tekin aftur til umfjöllunar,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til frekari umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði og bæjarráði.

Aukin lýsing við gangbrautir

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að lýsing verði aukin við gangbrautir.

„Í auknum mæli notar fólk vistvæna ferðamáta og ferðast gangandi eða á hjólum af ýmsu tagi. Lýsingar við gangbrautir í bænum eru misgóðar og mikilvægt að bæta lýsingu þar sem þess er þörf til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Því leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að ráðist verði í endurbætur á lýsingu við gangbrautir þar sem henni er ábótavant,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til frekari umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði.

Uppbygging á hagkvæmu húsnæði

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að Hafnarfjarðarbær leiti leiða til að fara í frekara og meira samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu hagkvæmra íbúða í bæjarfélaginu.

„Í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem er á húsnæðismarkaði og fólksfækkunar á undanförnum árum í bænum leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að Hafnarfjarðarbær fari í frekara samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða. Þannig verði hagkvæmum íbúðum á markaðnum fjölgað og bæjarfélagið gæti einnig fjölgað félagslegum íbúðum á vegum þess með þessari aðgerð,” segir í greinargerð með tillögunni.

Tillögunni var vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2