Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hefur rausnarlega stutt við rekstur sporhunda Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og hafa árlega lagt háa fjárhæð til sveitarinnar.
Klúbburinn notaði tækifærið þegar heimsforseti Lions 2021-2022, Douglas X Alexander, frá Bokklyn í New York í Bandaríkjunum, heimsótti landið og kynntist Lionsstarfinu hér á landi.
Kom hann í heimsókn til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og fékk að kynnast starfsemi sporhundadeildarinnar sem svo rausnarlega hefur verið styrkt af Lions.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2021/11/Lions-Bjorgunarsveit-2021-34-copy-1024x532.jpg)
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar var stofnaður 1956 og undanfarin ár hefur aðalfjáröflun klúbbsins verið sala á Gaflaranum, sem hjá mörgum er orðinn safngripur. Klúbbfundir eru tvisvar á mánuði yfir vetrartímann. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar er einn þriggja Lionsklúbba í Hafnarfirði en hinir eru Ásbjörn og Kaldá.