fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirSkipulagsmálAðalskipulagi breytt til að þétta byggð og gera ráð fyrir Tækniskóla

Aðalskipulagi breytt til að þétta byggð og gera ráð fyrir Tækniskóla

Skipulags- og byggingarráð hefur samþykkt að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breytingin nær til suður og austur hluta Suður­hafnar, þ.m.t. Flens­borgarhafnar. Reit­urinn sem breytingin nær til er merktur sem H1 (Suður-höfn) og H2 (Flens­borgarhöfn) í aðalskipulagi Hafnar­fjarðar 2013-2025. Landnotkun reitsins er hafnarsvæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi.

Breytingar fá gildandi skipulagi má sjá á hægri myndinni.

Til grundvallar megin hluta þessarar skipulagsafmörkunar liggur ramma­skipulag Flensborgarhafnar og Óseyrar­svæðis, þar með talið svæði utan deiliskipulagsmarka Suðurhafnar er liggur með strönd fjarðarbotnsins í átt að miðbæ Hafnarfjarðar.

Aðalskipulagsbreytingin nær einnig til svæðis sem afmarkast af Hval­eyrar­braut, Lónsbraut og Stapagötu, að vestur mörkum Suðurhafnarreits, en sá hluti breytingarinnar fellur ekki undir rammaskipulagið.

Í gildandi aðalskipulagi og samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er stefnt að því að fullnýta byggingar-möguleika miðlægra svæða og lögð áhersla á að fjarlægðir milli íbúa og starfa verði styttar með blandaðri byggð. Gert er ráð fyrir að byggð á svæðinu verði þétt í samræmi við stefnu aðalskipulagsins um þéttingu á vannýttum svæðum, sem eru í göngu­fjarlægð frá miðbænum.

Einkum er reiknað með þjónustu, atvinnustarfsemi og íbúðum á svæðinu. Áhersla verði á heildstæða blandaða byggð með borgar- eða kaupstaða­einkennum í vönduðu umhverfi og raunhæfum aðstæðum fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi í sátt við aðliggjandi hverfi og hafnarstarfsemi.

Breytingar á land­nýtingar­flokkum:

  • H1; Suðurhöfn verður að hluta til íbúðarsvæði ÍB15 (milli Óseyrarbrautar og Hvaleyrarbrautar) og miðsvæði M6 og M7.
  • H2; Flensborgarhöfn breytist í miðsvæði M5 sem með stækkun út í sjó verður 4 ha.
  • H6; Hamarshöfn, ný smábátahöfn og 5 m strandræma meðfram M5 er 0,7 ha.
    Verður hún við Strandgötu, framan við Vesturhamarinn.

Tillögur skipulags- og byggingarráðs hefur verið vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2