Nú hefur Landsbókasafn Íslands lokið við að skanna öll eldri tölublöð Fjarðarfrétta, allt frá 1969 og setja inn á timarit.is. Þá hefur safnið fengið öll tölublöð frá 2016 til dagsins í dag á PDF formi og sett inn sömuleiðis.
Á timarit.is eru geymd hvers konar blöð og tímarit sem hafa verið skönnuð og gert mögulegt að leita að ákveðnum orðum í blöðum sem gerir alla heimildaleit mun auðveldari.
Ýmis önnur hafnfirsk blöð eru komin og á leiðinni inn á tímarit.is en hægt er að leita eftir titlum útgefnum í Hafnarfirði en í dag eru þar 32 titlar. Þannig er hægt að leita í ákveðnum blaðatitlum eftir ákveðnu tímabili og kennir ýmissa grasa.
Alls hafa 224 tölublöð Fjarðarfrétta þannig verið gerð aðgengileg fyrir alla heimildaleit og því aðeins jólablaðið sem ekki er komið þar inn. Bein slóð á fyrsta blað núverandi útgefanda má finna hér.
Bein slóð á Fjarðarfréttir á timarit.is er https://timarit.is/publication/1526
Hönnunarhúsið ehf., útgefandi Fjarðarfrétta þakkar Landsbókasafninu fyrir samstarfið og vonast til þess að blöðin á timarit.is is veki áhuga hjá Hafnfirðingum og öðrum áhugasömum um Hafnarfjörð, enda eru bæjarblöð mikil menningarverðmæti hvers sveitarfélags.