fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniListamannaspjall fellur niður á síðasti sýningardegi

Listamannaspjall fellur niður á síðasti sýningardegi

Á sunnudaginn verður síðasti sýningardagur sýningunnar Söngfuglar í Hafnarborg en listamannaspjall með Katrínu Elvarsdóttur sem auglýst hafði verið, fellur niður.

Á sýningunni má sjá ný verk eftir listakonuna frá því að hún heimsótti eyna Kúbu. Þar gekk hún um götur Havana með myndavélina að vopni en hún tók sérstaklega eftir því að margir eyjarbúar halda söngfugla í búrum á heimilum sínum.

Vekur þessi siður jafnvel upp spurningar um frelsi og frelsisskerðingu en saga eyjarinnar hefur til langs tíma einkennst af höftum og einangrun. Jafnframt má spyrja sig hvort Kúbverjar finni til samkenndar með fuglunum, sem eru ekki frjálsir ferða sinna, frekar en eyjarbúar. Þá ættum við flest að eiga létt með að samsama okkur slíkri innilokunarkennd í dag, enda veldur núverandi ástand heimsins því að mörgum okkar finnst eins og við séum föst í búri, hvar sem við erum stödd á hnettinum.

Katrín Elvarsdóttir

Katrín Elvarsdóttir lauk BFA námi frá Art Institute í Boston árið 1993. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga hérlendis og erlendis. Þá hafa verk Katrínar verið sýnd á samsýningum víða, þar á meðal á Þöglu vori í Hafnarborg árið 2020. Fjórar bækur hafa áður verið gefnar út með ljósmyndum Katrínar og verður bókin Songbirds, sem kemur út samhliða sýningu hennar í Hafnarborg, sú fimmta. Katrín hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna eins og EIKON Award árið 2017, Deutsche Börse Photographic Prize árið 2009 og heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2