fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirEkki verður lengur kosið í Norðurbæ - Áfram aðeins tveir kjörstaðir

Ekki verður lengur kosið í Norðurbæ – Áfram aðeins tveir kjörstaðir

Reykjavíkurborg hefur fjölgað kjöstöðum til muna með að markmiði að bæta aðgengi kjósenda

Forsetanefnd lagði til, á fundi sínum í gær, að við sveitarstjórnarkosningar í Hafnarfirði 14. maí 2022 verði starfræktir tveir kjörstaðir, sem henti vel dreifingu íbúðabyggðar í bænum: Lækjarskóli og íþróttamiðstöðin Ásvöllum.

Töluverð óánægja var meðal bæjarbúa að aðeins voru tveir kjörstaðir í Hafnarfirði við síðustu kosningar og langt fyrir marga að fara.

Adda María Jóhannsdóttir,  fulltrúi Samfylkingarinnar í forsetanefnd fagnaði því að loks eigi að að tryggja kjörstað á Völlunum en sagði það ákveðin vonbrigði að kjörstöðum hafi ekki verið fjölgað í a.m.k. þrjá.

„Til samanburðar hefur Reykjavíkurborg fjölgað kjörstöðum til muna með það að markmiði að bæta aðgengi kjósenda. Þar hefur það verið óopinbert markmið að kjörstaðir séu í göngufæri og geta um 84% íbúa borgarinnar gengið á kjörstað og heim aftur á 30 mínútum,“ sagði Adda María í bókun sinni.

Málið verður tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar á morgun, miðvikudag.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2