fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimFréttirPólitíkBjart fram undan í Hafnarfirði

Bjart fram undan í Hafnarfirði

Kraftmikil uppbygging íbúðahúsnæðis er nú hafin víðsvegar um bæinn líkt og bæjarbúar hafa tekið eftir á ferð sinni um sveitarfélagið. Mikil uppbygging hefur verið í Skarðshlíð frá upphafi kjörtímabilsins og hefur krafturinn aukist umtalsvert á undanförnu einu og hálfu ári. Íbúðir í Hamranesi, okkar nýjasta byggingarlandi, eru nú byrjaðar að rísa en þar verða um 1700 íbúðir þegar hverfið verður að fullu byggt með öllum þeim innviðum sem nauðsynlegir eru.

Þétting byggðar miðar vel áfram þar sem framkvæmdir eru hafnar á Dvergsreitnum svokallaða, Hrauntungu, Stekkjarbergi og við Hjallabraut. Hús eru byrjuð að rísa á Dvergsreitnum, Hrauntungu og Stekkjarbergi, en jarðvegsvinna er í fullum gangi við Hjallabraut. Deiliskipulag fyrir Ásland 4 hefur verið afgreitt úr skipulags- og byggingarráði, en þar má gera ráð fyrir um 500 íbúðum í heildina; mest sérbýli í bland við lítil fjölbýlishús.

Tækniskólinn, byggð við höfnina og miðbærinn

Mikil ásókn hefur verið í atvinnuhúsalóðir sem rokið hafa út á kjörtímabilinu. Stór og öflug fyrirtæki hafa jafnframt ákveðið að reisa höfuðstöðvar sínar í bæjarfélaginu og má þar nefna fyrirtæki eins og Icelandair sem vinnur nú að því að flytja alla sína starfsemi til bæjarfélagsins. Það er ekkert launungarmál að slík fyrirtæki skila miklum tekjum til bæjarfélagsins, bæði beinum og óbeinum. T.d. með starfsfólki sem ákveða að flytja til bæjarins og setjast þar að.

Nýr Tækniskóli mun rísa á Suðurhöfninni og ég vil leyfa mér að segja að hreint út að sá áfangi og sú ákvörðun sé ein sú stærsta á kjörtímabilinu. Hér er um að ræða gríðarstóra framkvæmd sem mun hafa jákvæð áhrif á bæjarfélagið allt. Sú framkvæmd mun styrkja og styðja við miðbæinn okkar og þá starfsemi sem þar nú þegar er ásamt því að efla enn frekar við þá miklu uppbyggingu sem fram undan er á Óseyrarsvæðinu og við Flensborgarhöfn. Verkefni sem þessi eru af þeirri stærðargráðu að þau klárast ekki á einum degi, eða einu kjörtímabili. Hér er um að ræða samvinnuverkefni ríkis, sveitarfélags og einkaaðila. Grunnurinn hefur hins vegar verið lagður og nú þarf að halda áfram veginn, vera með augun á boltanum eins og sagt er og fylgja málum vel eftir. Þetta er spennandi verkefni fyrir Hafnarfjörð og íbúa bæjarfélagsins.

Íbúar í forgrunni

Markvisst hefur verið unnið að því að kjörtímabilinu að halda álögum á íbúum í lágmarki og sérstaklega hefur verið horft til barnafjölskyldna með það að markmiði að létta þeim róðurinn. Það hefur tekist og er óumdeilt. Þrír íbúakjarnar fyrir fatlað fólk hafa risið á kjörtímabilinu. Systkinaafsláttur á leikskólagjöldum var hækkaður verulega í upphafi kjörtímabils og nýjum systkinaafslætti var komið á skólamáltíðir grunnskólabarna. Þar viljum við stíga enn frekari skref á næsta kjörtímabili og halda áfram á þeirri vegferð að lækka kostnað barnafjölskyldna með skynsamlegum hætti og um leið að tryggja og treysta þjónustu við íbúa hér í bæ, unga sem aldna.

Snyrtilegur bær, átak

Í upphafi síðasta sumars var samþykkt að bæta 340 milljónum króna í framkvæmdir í bæjarfélaginu. Þar var sérstaklega horft til uppsafnaðar fjárfestingaþarfar á endurnýjun gangstétta í eldri hverfum bæjarins auk nauðsynlegs frágangs í þeim hverfum sem nýrri eru. Við sjáum það nú að þessum fjármunum var vel varið og átakið vel heppnað. Merki þess sjást um bæ allan. Snyrtilegur og aðgengilegur bær fyrir alla á að vera okkar helsta keppikefli. Við þurfum að horfa heildsætt á þessi mál og tryggja að bærinn sé snyrtilegur og vel þrifinn; götur sópaðar, rusl tekið, grasblettir slegnir og götur mokaðar. Snyrtilegur og aðgengilegur bær er öruggur bær. Það er Hafnarfjörður og hann verður það áfram.

Ágúst Bjarni Garðarsson,
bæjarfulltrúi (B) og formaður bæjarráðs

Greinin birtist í Fjarðarfréttum 2. tbl. 20. árg. – 2. febrúar 2022.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2