fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirUmhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögur starfshóps um samræmda sorpflokkun

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögur starfshóps um samræmda sorpflokkun

Gert ráð fyrir flokkun í fjóra flokka á heimilum

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi kallað eftir samræmdu sorphirðukerfi við heimili og sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi. Undanfarna mánuði hafa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) unnið að undirbúningi á slíku og var skýrsla starfshóps um samræmingu og sérsöfnun nýlega kynnt.

Í skýrslunni er gert ráð fyrir að innleiðing hefjist í völdum hverfum í vor og yrði lokið vorið 2023.

Fjórir flokkar af sorpi og möguleiki á tvískiptum tunnum

Í nýja sorphirðukerfinu er lagt til að fjórum úrgangsflokkum verði safnað við öll heimili á höfuðborgarsvæðinu. Úrgangsflokkarnir eru:

  • Lífrænn eldhúsúrgangur
  • Blandað heimilissorp
  • Pappír og pappi
  • Plastumbúðir
Lagt er til að öll ílát, ker og djúpgámar verða merkt með merkingum í samræmi við reglur Fenúr (Fagráðs um endurnýtingu og úrgang) sem hefur þýtt og staðfært nýtt og samræmt norrænt merkingakerfi fyrir úrgang.

Kerfið er í samræmi við þær breytingar sem taka gildi á lögum um söfnun á úrgangi við heimili um áramótin og er að norrænni fyrirmynd.

Við tillögugerð að hönnun kerfisins var haft að leiðarljósi að breytingarnar verði eins þægilegar og einfaldar fyrir íbúa og mögulegt er og verða tvískiptar tunnur í boði við heimili þar sem pláss er af skornum skammti.

Þegar notaðar eru tvískiptar tunnur verður lífrænum eldhúsúrgangi og blönduðum úrgangi safnað í sitthvort hólfið í sömu tunnunni og plastumbúðum annars vegar og pappír og pappa hins vegar verður safnað í aðra tvískipta tunnu.

Mikið framfaraskref fyrir íbúa

„Samræming sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu og sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi yrði mikið framfaraskref fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélögin hafa unnið náið saman í samstarfi við fulltrúa SORPU undanfarna mánuði við gerð skýrslunnar og það er mín von að sveitarfélögin öll taki vel í tillögur að innleiðingu á nýju kerfi. Samræmt kerfi yrði betra en ósamræmt kerfi og myndi auðvelda íbúum að flokka úrgang sinn. Það auðveldar einnig fyrirtækjum sem meðhöndla úrganginn að koma honum í réttan farveg og efnisstrauma,“ segir Gunnar Einarsson, formaður stjórnar SSH.

Ílát fyrir bréfpoka undir lífrænan úrgang.

Segir hann einnig að sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi sé einnig mikilvæg aðgerð til að GAJA geti unnið moltu úr lífrænum eldhúsúrgangi frá höfuðborgarsvæðinu.

Í skýrslunni er lagt til að lífræna eldhúsúrganginum verði safnað í bréfpoka sem sveitarfélögin útvega íbúum. Segir Gunnar að pokarnir hafi gefist mjög vel á Norðurlöndunum og skipti lykilmáli til að hægt sé að vinna nothæfa moltu úr lífrænum úrgangi í GAJU.

Dæmi um útfærslu í sérbýlum og fjölbýlum, sem einnig má finna í skýrslunni sjálfri.

Úr skýrslu starfshópsins.

Fleiri og betri grenndargámar

Til viðbótar við fjögurra flokka kerfi við heimili er lagt til að grenndarstöðvanetið verði þétt og að gleri, málmum, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum verði safnað á grenndarstöðvum sem verða í um það bil 500 metra fjarlægð frá hverju heimili. Stærri grenndarstöðvar verða í um það bil 1.000 metra fjarlægð frá hverju heimili og þar bætast við gámar fyrir pappír og pappa, og plast. Hlutverk endurvinnslustöðva SORPU verður óbreytt en þar geta íbúar höfuðborgarsvæðisins skilað öllum helstu úrgangsflokkum til meðhöndlunar.

Undirbúningur og vinnsla verkefnisins

Verkefnið um samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu er eitt af mörgum áhersluverkefnum Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2020-2024.

Að sögn Páls Björgvins Guðmundssonar framkvæmdastjóra SSH er tillögugerðin og skýrslan um samræmda úrgangsflokkun nú í umfjöllun hjá aðildarsveitarfélögum SSH og vonast er til að umræðunni ljúki á næstu vikum.

Samþykkt í umhverfis- og framkvæmdaráði

Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum 2. febrúar sl., fyrir sitt leyti tillögur um samræmda flokkun við heimili og vísaði skýrslunni til afgreiðslu í bæjarráði.

Kostnaður fyrr Hafnarfjarðarbæ

  • Áætlað er að útvega þurfi 5.372 sorpílát við sérbýli í Hafnarfirði og kostnaðurinn við það yrði um 69,8 milljónir kr.
  • Við fjölbýli þyrfti 2.058 sorpílát sem kostar um 12,9 millj. kr.
  • Áætlað er að það kosti 28,9 milljónir að afhenda þessi ílát til íbúanna.
  • Þá er reiknað með að  6,2 milljónir kr. kosti að útvega ílát fyrir lífrænan úrgang en einnig er gert ráð fyrir að sveitarfélögin útvegi íbúum bréfpoka til að flokka lífrænan eldhúsúrgang í.
  • Áætlað er að fjölga þurfi um 3 grenndarstöðvar, tvær minni og eina stóra. Áætlaður kostnaður við það er um 18,5 millj. kr.
  • Áætlaður kostnaður við innleiðingu er því áætlaður um 136 millj. kr. fyrir Hafnarfjörð
  • Þá er gert ráð fyrir að kostnaðaraukning við sorplosun verð 27,1 millj. kr. á ári.

Skýrsla starfshópsins

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2