fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirGuðmundur Árni sigraði með yfirburðum

Guðmundur Árni sigraði með yfirburðum

Guðmundur Árni Stefánsson, fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, þingmaður, ráðherra og sendherra, sigraði örugglega í flokksvali Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Kosning var rafræn og kusu 43% félagsmanna á kjörskrá.

Kosning í sex efstu sætin er bindandi fyrir uppstillingarnefnd að teknu tilliti til reglna Samfylkingarinnar um að ekki halli á hlut kvenna.

Niðurstöður í efstu sex sætin voru eftirfarandi:

  1. Guðmundur Árni Stefánsson með 537 atkvæði í 1. sæti
  2. Sigrún Sverrisdóttir með 290 atkvæði í 1.-2. sæti
  3. Árni Rúnar Þorvaldsson með 485 atkvæði í 1.-3. sæti
  4. Hildur Rós Guðbjargardóttir með 351 atkvæði í 1.-4. sæti
  5. Stefán Már Gunnlaugsson með 429 atkvæði í 1.-5. sæt
  6. Kolbrún Magnúsdóttir með 434 atkvæði í 1.-6. sæti

Á kjörskrá voru 2.225 og greiddu 962 atkvæði eða 43%.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2