fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirUmhverfisstofnun telur heimilt að sturta snjó í sjóinn

Umhverfisstofnun telur heimilt að sturta snjó í sjóinn

Fjarðarfréttir innti eftir áliti Umhverfsstofnunar á því að sturta snjó í sjóinn en Hafnarfjarðarbær taldi að slíkt væri óheimilt og lét aka snjónum nokkuð langa leið til förgunar.

„Við lítum svo á að mokstur á hreinum snjó falli ekki undir ákvæði um bann á varpi í hafið í 9.gr. l. nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda,“ segir K. Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur á sviði umhverfisgæða hjá Umhverfisstofnun.

Hún segir þó að æskilegast væri að farið væri með snjóinn í settjarnir þar sem að hann getur innihaldið ýmiskonar efni; þungmálma, þrávirk efni úr olíu og örplast.

„Þar sem það er ekki valkostur gerum við ekki athugasemdir við að hann sé losaður út í sjó, ef gætt er að því að önnur efni af götunum fari ekki með og gætt sé að því að staðsetning losunarinnar fari ekki fram á viðkvæmu svæði,“ segir Sólveig í svari til Fjarðarfrétta.

 

Ekið með snjó langar leiðir og deilt um hvort megi sturta honum í höfnina

 

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2