Frárennsliskerfi bæjarins ráða víða ekki við þann vatnselg sem myndast núna í hlákunni.
Undirgöngin undir Strandgötu, milli Suðurbæjarlaugar og ÓlaRunstúns eru nær full af vatni og vatnsdýptin þar um 2 metrar.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-08-1024x683.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-07-1024x683.jpg)
Mikill vatnsflaumur er niður Lækjargötu og á móts við Hafnarfjarðarkirkju er djúpt vatn á veginum en þar höfðu frárennslislagnir þó verið endurnýjaðar fyrir örfáum árum. Strandgata 49 er nær umflotin vatni og hafði eigandi Álfagulls áhyggjur af því að vatn færi að flæða inn.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-27-1024x683.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-34-1024x683.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-21-1024x605.jpg)
Vatn flæddi inn á Hársnyrtistofuna Topp sem er í kjallara Strandgötu 41 og var verið að dæla vatni þar upp í morgun.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-42-1024x683.jpg)
Á Völlunum myndast flóð við hringtorgið við Flugvelli en því ættu Vallarbúar að vera vanir og þar hefur verið lokað fyrir umferð og ekki í fyrsta sinn í ár.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Vatnselgur-mars-2022-2-vef-1024x550.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Vatnselgur-mars-2022-1-vef-1024x527.jpg)
Segir einn íbúanna á Völlum svolítið sérstakt að sjá þetta gerast ítrekað, bæði vegna hönnunargalla og að niðurföllin annað hvort stíflast eða hafa ekki við. „Hringtorgin eru jafnan á hæstu hæðum, beggja vegna við þau eru lægðir og síðan hæðir á millum, þrátt fyrir að auðveldlega hefði verið hægt að hanna þau m.t.t. til þess að einhvern tíma þyrfti vatn að leka að þeim og komast síðan í burtu því vatn hefur þann eiginleika að leita ávallt í lægstu læðir, en á erfiðara með að renna uppi í móti,“ segir íbúinn og telur að betur megi gera.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hafnarfjordur-vatnselgur-Strandgata-38-1024x683.jpg)
Víða eru niðurföll hulin klaka þar sem ekki náðist að moka vel frá í upphafi. Þá eru niðurföll frekar lítil m.v. það sem sést í nágrannalöndunum og lítið þarf til að þau stíflist.