fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimUmræðanMikilvægt að skipuleggja stígakerfið í upplandinu

Mikilvægt að skipuleggja stígakerfið í upplandinu

Sigurður P. Sigmundsson, oddviti Bæjarlistans skrifar

Fyrir rúmu ári síðan var skipaður starfshópur á vegum Hafnarfjarðarbæjar til að fara yfir skipulag göngustíga, hjólreiðastíga og reiðvega í upplandi Hafnarfjarðar allt frá Gráhelluhrauni að Helgafelli og frá Vallarhverfi að Hvaleyrarvatni. Starfshópurinn, sem undirritaður átti sæti í, skilaði fyrstu tillögum sínum þann 31. maí 2021 sem eru eftirfarandi:

    1. Áframhald á malbikuðum göngu- og hjólastíg frá afleggjara við Hvaleyrarvatn að Helgafelli, áningarstað.
    2. Göngu- og hjólastígur frá Vallahverfi að Hvaleyrarvatni. Lagður verði malarstígur fyrir gangandi og hjólandi frá Vallahverfi að Hvaleyrarvatni.
    3. Göngustígur umhverfis Hvaleyrarvatn verði byggður upp miðað við algilda hönnun.
    4. Aðgreining á umferð gangandi, hjólandi og hestafólks  að og frá Gráhelluhrauni.
    5. Stórhöfðastígur, aðgreining á umferð að hluta. (Reiðleið og gönguleið).
    6. Endurstikun gönguleiða/útivistarstíga  í upplandi  Hafnarfjarðar.
    7. Merkingar á stígum í upplandi Hafnarfjarðar.

Í febrúar síðastliðnum skilaði starfshópurinn svo tillögu um nánari útfærslu á fyrirkomulagi stíga í Gráhelluhrauni, með vísan í  lið 4, sem ég tel að myndi gjörbreyta aðgengi og umferð til hins betra á því svæði. Um þá tillögu og aðrar hefur verið mikil samstaða í starfshópnum. Sem áhugamaður um hreyfingu og útivist legg ég mikla áherslu á að Hafnarfjarðarbær komi þessum tillögum í framkvæmd hið fyrsta. Mikilvægt er að lágmarka hugsanlega árekstra milli hestamanna, hjólreiðafólks, hlaupara og gangandi vegfarenda sem því miður hafa verið nokkur dæmi um á síðustu árum. Með góðu skipulagi, merkingu á leiðum, kortlagningu og kynningu er hægt að koma því þannig fyrir að allir vegfarendur verði þokkalega sáttir. Í mínum huga ber bæjaryfirvöldum skylda til þess að auðvelda íbúum að njóta þeirrar frábæru náttúru sem upplandið býður upp á.

Sigurður P. Sigmundsson,
oddviti Bæjarlistans

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2