Framboðslisti Samfylkningarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða með lófataki á fjölmennum félagsfundi Samfylkingarinnar 7. mars s.l.
Guðmundur Árni Stefánsson leiðir listann en hann sigraði í rafrænu flokksvali. aðrir sem hlutu bindandi kosningu vouru Árni Rúnar Þorvaldsson, Hildur Rós Guðbjargsdóttir, Stefán Már Gunnlaugsson og Kolbrún Magnúsdóttir.
Guðmundur Árni Stefánsson segir að listinn sé feyki sterkur og samanstandi af öflugu fólki á mismunandi aldri og með ólíkan bakgrunn. „Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er ekki bara sigurstranglegur heldur líka fjölbreyttur en á listanum er fólk úr öllum áttum úr hafnfirsku samfélagi. Við erum með ungt og ferskt fólk í bland við reynslu sem hefur brennandi áhuga á öllum hliðum samfélagsins. Hafnarfjörður er jafnaðarmannabær og við erum mætt til leiks og ætlum að láta verkin tala.“
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði:
- Guðmundur Árni Stefánsson, 66, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði
- Sigrún Sverrisdóttir, 44, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðinemi
- Árni Rúnar Þorvaldsson, 45, grunnaskólakennari og varabæjarfulltrúi
- Hildur Rós Guðbjargardóttir, 29, kennaranemi og starfsmaður á Hrafnistu
- Stefán Már Gunnlaugsson, 48, héraðsprestur og varabæjarfulltrúi
- Kolbrún Magnúsdóttir, 44, mannauðsstjóri
- Auður Brynjólfsdóttir, 26, starfsmaður á leikskóla
- Jón Grétar Þórsson, 39, starfsmaður hjá félagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar
- Gunnar Þór Sigurjónsson, 28, upplýsingaöryggisstjóri
- Helga Þóra Eiðsdóttir, 58, markaðsfræðingur
- Gauti Skúlason, 28, verkefnastjóri hjá fimm aðildarfélögum BHM
- Gundega Jaunlinina, 22, starfsmaður hjá verkalýðsfélaginu Hlíf
- Snædís Helma Harðardóttir, 21, háskólanemi í þroskaþjálfun og leikskólastarfsmaður
- Símon Jón Jóhannsson, 64, framhaldskólakennari í Flensborg
- Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, 28, starfsmaður hjá Þroskahjálp
- Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, 49, aðstoðarskólastjóri í Hraunvallaskóla
- Reynir Ingibjartsson, 81, rithöfundur
- Sigurjóna Hauksdóttir, 20, háskólanemi í uppeldis- og menntunarfræði
- Gylfi Ingvarsson, 77, eldri borgari og vélvirki
- Sigrid Foss, 68, fótaaðgerðafræðingur
- Steinn Jóhannsson, 53, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð
- Adda María Jóhannsdóttir, 55, bæjarfulltrúi og framhaldskólakennari