Sigga, Beta og Elín hafa verið duglegar að svara kalli fólks um að koma og syngja lagið Með hækkandi sól.
Í morgun sungu þær við mjög góðar undirtektir í Lækjarskóla.
„Þetta byrjaði á því að krakkarnir í Hjallastefnunni sem ég kenni tónlist komu mér á óvart með því að syngja lagið fyrir mig. Ég ákvað að fá stelpurnar í heimsókn til að hlusta á fallega flutninginn þeirra og syngja svo lagið með þeim,” segir Beta.
„Þetta spurðist út og Barnaskór Ísaksskóla bauð okkur í heimsókn. Eftir að myndband frá Ísaksskólaheimsókninni fór í loftið hafa þær fengið boð um að mæta bæði í skóla og á vinnustaði og þegið þau með glöðu geði.“
Núna eru þær komnar á lokaæfingu fyrir Söngvakeppnina í Gufunesi þar sem þær einbeita sér að því að syngja til sigurs í dómararennslinu í kvöld og í keppninni sjálfri á morgun.
Þær stöllur eru systur og dætur tónlistarfólksins góðkunna, Eyþórs Gunnarssonar og Ellenar Kristjánsdóttur.