fbpx
Þriðjudagur, desember 17, 2024
target="_blank"
HeimFréttirMenning og mannlífSetbergsskóli setti upp Dýrin í Hálsaskógi

Setbergsskóli setti upp Dýrin í Hálsaskógi

Það mátti vart á milli sjá hverjir voru spenntari, nemendurnir ungu í Setbergsskóla eða foreldrar þeirra, þegar leikritið Dýrin í Hálsaskógi var flutt í morgun.

Þetta er annað árið sem 4. bekkur í Setbergsskóla setur upp Dýrin í Hálsaskógi en framkvæmdin er samvinna allra nemenda og eru allir þátttakendur í uppsetningunni.

Nemendur fengu tækifæri á að fara í leikprufur fyrir hlutverkin og þegar búið var að velja í hlutverkin tóku við æfingar einu sinni í viku.

Ljósmyndari Fjarðarfrétta fylgdist með foreldrasýningu í morgun en alls var verkið sýnt fjórum sinnum við góðar undirtektir stoltra foreldra.

Krakkarnir nutu sín vel í leikritinu og leystu hlutverk sín vel af hendi.

Hér má sjá nokkrar myndir frá leikritinu.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2