fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniNorræn myndbandasamkeppni fyrir hugmyndaríka krakka!

Norræn myndbandasamkeppni fyrir hugmyndaríka krakka!

Norræna verkefnið NordMar Biorefine, sem Matís stýrir, hefur sett af stað myndbandasamkeppni fyrir ungmenni á aldrinum 14-19 ára.

Keppnin er opin öllum á þessum aldri á Norðurlöndunum.

Höfðað til frumkvöðlahugsunar unga fólksins

Markmiðið með myndbandakeppninni er að höfða til frumkvöðlahugsunar unga fólksins en með myndböndunum gefst því kostur á að setja fram sínar hugmyndir um hvernig nýta megi auðlindir hafs og vatns á nýjan eða betrum bættan hátt. Sérstök áhersla er lögð á þær auðlindir sem eru van- eða ónýttar.

Myndböndin mega vera hvernig sem er, þ.e. leikin, heimildamyndir, teiknimyndir o.s.frv. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir besta myndbandið!

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Matís og á vefsíðu NordMar Biorefine hér: https://bluebioportal.com/video-contest/

NordMar Biorefine verkefnið gengur út á það að kanna möguleikana sem felast í fullnýtingu þeirra sjávarauðlinda sem nýttar eru á Norðurlöndunum með lífmassaverum. Samhliða þeirri vinnu hafa Norræn lífmassaver verið nýtt sem fyrirmyndir áframhaldandi uppbyggingar Matís á lífmassaveri í Neskaupstað sem mun meðal annars stuðla að aukinni fullnýtingu sjávarauðlinda.

Myndbandasamkeppnin er einungis einn margra þátta NordMar Biorefine. Meðal annarra þátta eru mat á hagkvæmni og möguleikum lífmassavera fyrir bláa lífhagkerfið á Norðurlöndunum, og myndun tengslanets sérfræðinga á þessu sviði í hinu svokallaða BlueBio Portal.

  • Nemendur, 14-19 ára á Norðurlöndum geta tekið þátt
  • Skilafrestur er 1. maí 2022
  • Hámarkslengd er 4 mínútur
  • Sigurvegarinn fær vinning að andvirði 10.000 DKK (um 191.000 ISK)

Verkefnið er eitt þeirra verkefna sem hófst út frá áherslumálum Norrænu Ráðherranefndarinnar þegar Ísland gegndi formennsku árið 2019.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2