Létt göngumessa verður frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 11 á sunnudagsmorguninn.
Gengið verður upp á Hamarinn þar sem sóknarprestur mun lesa úr Fjallræðunni.
Egill Friðleifsson leiðir gönguna og Guðmundur organisti leiðir söng.
„Upplagt fyrir barnafólk með kerrur að fjölmenna. Eftir Euróvisíón og kosningar er tilvalið að fara í hressandi göngu á sunnudagsmorgni og fá smá andlega næringu í leiðinni. Verið öll hjartanlega velkomin!,“ segir í tilkynningu frá Hafnarfjarðarkirkju.
Sá ég spóa – Tónleikar
Vortónleikar Barna-og unglingakórs Hafnarfjarðarkirkju verða á sunnudaginn kl. 17 í Hafnarfjarðarkirkju og er yfirskriftin „Sá ég spóa“.
Sérstakur gestur er söngkonan Salka Sól. Stjórnendur eru Helga Loftsdóttir og Brynhildur Auðbjargardóttir en meðleikari er Agnar Már Magnússon.