fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanÞað sem allir vilja, en enginn þorir – Breytingar!

Það sem allir vilja, en enginn þorir – Breytingar!

Auðbergur Magnússon skrifar

Það sem flestir kjósendur í Hafnarfirði virðast helst vilja eru breytingar. En ef að breytingarnar snúast bara um hvort það vill Sjálfstæðisflokkinn eða Samfylkinguna hverjar eru þá breytingarnar?

Þessir flokkar hafa ráðið öllu hérna í bænum frá því að elstu menn muna.

Það að velja til skiptis þessa tvo flokka er ekki að velja breytingar.

Í þessum kosningum hefur þú kæri Kjósandi skýran kost að velja ef þú villt breytingar.

Villtu nýtt fólk með nýjar áherslur og sýn á hvernig bærinn þinn verður eða villtu óráðssíu í peningamálum, einsog í tíð Samfylkingarinnar undir stjórn Bæjarstjóraefnis þeirra, eða stöðnun og framtaksleysi Sjálfstæðisflokksins og áframhaldandi sölu eigna bæjarins?

  • Villtu faglega ráðinn Bæjarstjóra eða pólitískan?
  • Villtu áframhaldandi stöðnun, framtaksleysi og íbúðaskort?
  • Villtu áframhaldani sölu á eignun bæjarins?
  • Villtu aftur óráðssíu í fjármálum bæjarins?
  • Kæri Kjósandi ef þú segir nei við einhverri af þessum spurningum; kjóstu þá breytingar.
  • Viðreisn er skýr kostur fyrir þá sem vilja virkilega breytingar.

https://vidreisn.is/hafnarfjordur/stefnan/

Auðbergur Magnússon,
skipar 5. Sæti Viðreisnar í Hafnarfirði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2