fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFrá ritstjóraÚtivist og hreyfing í hávegum í sumar

Útivist og hreyfing í hávegum í sumar

Leiðari Fjarðarfrétta 18. maí 2022

Annað árið í röð kemur út sérblað um sumarstarf fyrir börn og ungmenni.

Æskulýðs- og íþrótta­félögin í Hafn­ar­firði halda úti öfl­ugu starfi á sumrin og margt er í boði.
Í blaðinu má finn tilboð frá fjöl­mörgum félögum en bæjarbúar eru hvattir til að leita á heimasíðum félaganna ef upplýsingar er ekki að finna hér.

Hafnarfjarðarbær styður vel við bakið á starfi þessara félaga til þess að börn og ungmenni geti tekið þátt í uppbyggjandi starfi sem styrki bæði líkamlega og andlega. Lögð er áhersla á að starfið sé metnaðarfullt, félögin uppfylli öll lög og reglur í starfi með börnum og íþróttafélög eru verð­launuð fyrir góða leiðtogaþjálfun.

Útivist og hreyfing er talin nauð­synleg öllum, á hvaða aldri sem er, og ekki síst á uppvaxtarárunum. Ekki aðeins eflir hún líkamlega hreysti heldur styrkir einnig andlega líðan. Því er það jafn nauðsynlegt fyrir foreldrana sem börnin að njóta útiveru með fjölskyldunni.

Guðni Gíslason ritstjóri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2