fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkSiggi Stormur yfirgefur Miðflokkinn

Siggi Stormur yfirgefur Miðflokkinn

Vill setja manngæsku og mannlegar þarfir í fyrsta sæti

Sigurður Þ. Ragnarsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði hefur ákveðið að hætta í Miðflokknum og ganga til liðs við Samfylkinguna í Hafnarfirði.

Sigurður, sem er vel þekktur veðurfræðingur, Siggi stormur, náði ekki inn í bæjarstjórn í liðnum kosningum en spáir betra veðri hjá Samfylkingunni. Segir hann í færslu á samfélagsmiðlum að þegar hann fór að spegla sig við flokkana komst hann að því að hann vildi setja manngæsku og mannlegar þarfir í fyrsta sæti. Segist hann alltaf hafa verið svolítið til hægri og hafi haft gaman að pólitísku vafstri.

„Þegar maður stendur á tímamótum er hollt að fara í gagnrýna sjálfskoðun. Eins og margir vita lentum við hjónin í miklu áfalli þegar sonur okkar varð lífshættulega veikur mánuðum saman og sér ekki fyrir endann á. Svona áfall gjörbreytir hugsun manns og lífið og lífsgæði fara í fremsta þrep. En þó áföllin dynji yfir mann, þá verður maður líka að reyna að halda áfram.

Þegar ég fór að spegla mig við flokkana komst ég að því að ég vildi setja manngæsku og mannlegar þarfir í fyrsta sæti. Ég hef alltaf verið svolítið til hægri og hef haft gaman að pólitísku vafstri.

Nú hef ég gert upp hug minn og ákveðið að hætta í Miðflokknum og yfirgefa hægrið. Ég hef semsagt ákveðið að færa mig yfir línuna til vinstri og ákveðið að ganga til liðs við Samfylkinguna. Þar sé ég samsvörun við það sem mér finnst öllu máli skipta, þegar öllu er á botninn hvolft, lífsgæði og velferð fólks. Ég finn að ég er sáttur við sjálfan mig að hafa tekið þessa ákvörðun og ber ekki kala til nokkurs manns. Ég hlakka hins vegar mikið til að fá að starfa með bæjarmálaflokki Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Svo mörg voru þau orð – hlýjar kveðjur til ykkar allra.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2