„Stærsta kvöld ársins er gengið í garð,“ segja aðstandendur Strandgate Film Festival en þeir eru hluti af Skapandi sumarstörfum sem Vinnuskóli Hafnarfjarðar býður upp á.
Í tilkynningu segir að á fimmtudaginn, 11. ágúst, verði skærustu stjörnur sólkerfisins samankomnar í Bæjarbíói til að keppa um ein virtustu kvikmyndaverðlaun veraldar.
„Þetta er því einstakt tækifæri til þess að sjá brot úr stærstu kvikmyndum ársins, á undan öllum hinum!“
Tilnefndar eru myndir á borð við „Ekkjuna“, „Blesi og lesbían“, „Draumórar“ og
„Hefnandinn 4: hinsta hefnd Hefnandans.“
Rauði dregillinn verður á sínum stað en mælst er til þess að gestir klæðist sínu fínasta pússi á hátíðinni.
Aðgangur er ókeypis, þökk sé styrktaraðilum hátíðarinnar: Bæjarbíói, viðburða- og menningarstyrk bæjarráðs og Al Salil Hilal fjárvörslusjóðnum.