Tveir öflugir hlaupahópar þar sem fólk á öllum getustigum nýtur þess að hlaupa
Skokkhópur Hauka og Hlaupahópur FH eru tveir af öflugustu hlaupahópum landsins. Skokkhópur Hauka var stofnaður í september 2007 og varð strax fjölmennur. Hlaupahópur FH var svo stofnaður í febrúar 2010 og varð strax einnig mjög fjölmennur.
Innan beggja hópanna eru afrekshlauparar í bland við áhugafólk um hlaup og skokk og þar er fólk á öllum aldri þó meðalaldurinn sé sennilega nálægt 40 árum.
Gott samstarf hefur verið á milli hópanna enda rekast hlauparar í hópunum oft á hvern annan á hlaupum, á hjóli eða á gönguskíðum en almennt hefur fólk í hópunum mikinn áhuga á útivist og hreyfingu.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hlaupahopur-FH-Skokkhopur-Hauka-16-1024x487.jpg)
Í síðustu viku hittust hóparnir á sameiginlegri hlaupaæfingu í boði Hauka sem voru að endurgjalda boð FH fyrir stuttu. Bláir FH-ingarnir og rauðir Haukarnir mættu á blá/rauðum íþróttavelli við Skarðshlíðarskóla og hlupu þaðan mislangar vegalengdir á stígum upplands Hafnarfjarðar.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hlaupahopur-FH-Skokkhopur-Hauka-23-1024x487.jpg)
Tilefni var til söngs í upphafi æfingar en tilefnið var 82 ára afmælis Hauka hlauparans Eysteins Hafbergs sem er glæsileg fyrirmynd yngri hlaupara. Sunginn var afmælissöngurinn og afmælinu fagnað vel.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hlaupahopur-FH-Skokkhopur-Hauka-04-1024x487.jpg)
Þegar komið var til baka buðu Haukar upp á íspinna enda veðrið afskaplega gott.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hlaupahopur-FH-Skokkhopur-Hauka-43-1024x462.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Hlaupahopur-FH-Skokkhopur-Hauka-20-1024x487.jpg)