fbpx
Þriðjudagur, desember 17, 2024
target="_blank"
HeimUmræðanUpphaf skólaársins

Upphaf skólaársins

Í upphafi skólaárs setjum við okkur markmið og hefjum ný verkefni. Stærsta verkefni barna okkar er byrjun skólagöngunnar hvort sem er í leik- eða grunn­skóla, verkefni sem börnin bíða með eftirvæntingu og tilhlökkun en getur verið afar krefjandi og fyrir suma erfitt. Það er gömul saga og ný að það þurfi heilt bæjarfélag til að ala upp barn og það er svo sannarlega satt þegar kemur að því að tryggja farsæla skólagöngu barnanna. Þessa dagana eru yngstu leik­skólabörnin alls 426 að hefja aðlögun sína hvert af öðru, en öll börn fædd í maí 2021 sem skráð voru með lögheimili í Hafnarfirði í maí 2022 hafa fengið boð um leikskólapláss. Á undanförnum árum hefur innritunaraldur barna lækkað jafnt og þétt og er nú miðað við að börn sem náð hafa 15 mánaða aldri að hausti fái boð um leikskólavist sem við í meirihlutanum teljum raun­hæfan aldur. Í vetur verða opnuð um 100 pláss í færanlegum kennslustofum og undirbúningur er hafinn við nýjan leikskóla í Hamranesi í takt við fjölgun íbúa þar.

Vel hefur gengið að manna stöður á frístundarheimilum og eru öll börn sem sótt var um fyrir á tilsettum tíma komin með öruggt pláss. Mikil eftirspurn hefur verið eftir plássum á frístunda­heimilum og er það trú okkar að ráðið verði í þær stöður fljótt og vel svo enn fleiri börn komist að.

Endurskoðun á skipulagi leikskólans

Eitt af stóru verkefnum okkar er að leiða áfram vinnu við að búa til samfellu eftir að fæðingarorlofi líkur með sterku dagforeldrakerfi, öflugum leikskólum og öðrum leiðum sem foreldrar hafa kallað eftir. Vinna við endurskoðun skipulags leikskólanna hefst nú á haustmánuðum og samtal við dag­foreldra er þegar hafið. Með samstöðu og samtali, þeirra sem þekkinguna hafa, þvert á flokka og fólk, getum við leitt áfram vinnu sem styrkir skóla­samfélagið okkar og býr þannig starfs­fólki og börnum enn betri starfs­aðstæður.

Með umburðarlyndi fyrir fjölbreyti­leikanum og skilning á mismunandi skoðunum vona ég að við Hafnfirðingar höldum inn í komandi vetur með það að markmiði að hlúa vel að hvort öðru.

Kristín Thoroddsen,
formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2