fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttir12,5% hækkun hjá Strætó 1. október

12,5% hækkun hjá Strætó 1. október

Stjórn Strætó bs. samþykkti  16. september sl. hækkun á fargjöldum Strætó um 12,5%.

Stök fargjöld og tímabilskort munu öll taka sömu verðbreytingu.

Fer stakt fargjald úr 490 kr. í 550 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4.000 kr. í 4.500 kr.

Verðhækkunum er ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum á aðföngum Strætó svo sem olíuverðshækkunum, en olíuverð hefur hækkað um tæp 40% frá áramótum og kostnaði vegna vinnutímastyttingar, sem hefur haft veruleg áhrif á reksturinn. Áhrifa heimsfaraldurs COVID  gætir enn í rekstrinum og útlit fyrir að uppsöfnuð áhrif á tekjur séu á bilinu 1500 m.kr. til 2000 m.kr.  Kemur þetta fram í tilkynningu Strætó bs.

Gjaldskrárbreyt­ing­arn­ar taka til þjón­ustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en ekki til akst­ursþjón­ustu fyr­ir fatlað fólk en þar verða eng­ar breyt­ing­ar á gjald­skrá.

Ný gjaldskrá tekur gildi 1. október næstkomandi.

Gjaldskrá Strætó 1. okt. 2022

STÖK FARGJÖLD
Fullorðnir 550 kr.
Ungmenni 275 kr.
Aldraðir 275 kr.
Öryrkjar 165 kr.
Börn, 11 ára og yngri 0 kr.
TÍMABILSKORT
30 DAGA 12 MÁNAÐA
Fullorðnir 9.000 kr. 90.000 kr.
Ungmenni 4.500 kr. 45.000 kr.
Aldraðir 4.500 kr. 45.000 kr.
Öryrkjar 2.700 kr. 27.000 kr.
Börn, 11 ára og yngri 0 kr. 0 kr.
KLAPP TÍUR 
VERÐ
Klapp 10 Fullorðnir 5.500 kr.
Klapp 10 Aldraðir 2.750 kr.
Klapp 10 Ungmenni 2.750 kr.
PLASTKORT
VERÐ
Klapp kort 1.000 kr.
DAGPASSAR
VERÐ
24 klst. 2.200 kr.
72 klst. 5.000 kr.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2