fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirFriðarloginn afhentur í Karmelklaustrinu

Friðarloginn afhentur í Karmelklaustrinu

Félagar í Skátagildunum, félögum eldri skáta, sóttu Friðarlogann í gær ásamt skátum úr Hraunbúum og skátahöfðingja í Karmelklaustrið í Hafnarfirði. Var þar falleg og látlaus athöfn þar sem nunnurnar spiluðu á fjölmörg hljóðfæri og sungu fyrir viðstadda og skátarnir sungu m.a. Tendraðu lítið skátaljós og Tengjum fastara bræðralagsbogann og tóku nunnurnar undir í söngnum.  

Friðurinn byrjar með þér

Sigríður Kristjánsdóttir, Skátagildinu í Hveragerði flutti friðarboðskapinn sem kemur að þessu sinni frá Danmörku. Hann fjallar um það að friðurinn byrji með þér. 

Sigríður Kristjánsdóttir úr Skátagildinu í Hveragerði flutti friðarboðskapinn.

Gústi úr Skátagildinu í Hveragerði og Þórður og Elsa Rún, skátar úr Hraunbúum, sóttu logann hjá nunnunum sem varðveita hann allt árið. Af loganum var síðan keikt á kertum hjá gestum sem lýstu upp andlit fólks. 

Þórður Guðlaugsson, skáti úr Hraunbúum fær friðarloga á kertið sitt.

Hvað er Friðarloginn? 

Loginn á uppruna sinn í Fæðingarhellinum í Betlehem sem hefur logað þar óslitið. 

Frá athöfninni í Karmelklaustrinu í gær.

Árið 1986 sóttu skátar logann og fluttu til Evrópu og árið 2001 kom loginn til Íslands og hefur logað hér síðan. Hann er vel geymdur hjá nunnunum í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Víðs vegar um heim er verið að dreifa loganum þessa dagana.  

Friðarloganum er deilt til þeirra sem vilja og boðskapur hans er:

  • Friður á jörðu
  • Ljós fyrir samfélag
  • Ljós skilnings
  • Ljós friðar og vináttu
  • Ljós umburðarlyndis
  • Ljós þurfandi og einmana
  • Gjöf til að lýsa upp á aðventunni
  • Gjöf handa þér svo þú getir kveikt á kerti öðrum til gleði 
Nunnurnar í Karmelklaustrinu eru ekki aðeins miklar handverkskonur heldur líka hæfileikaríkar tónlistarkonur.

Á aðventu fara skátarnir með logann á fundi hjá skátunum bæði þeim eldri og yngri, í kirkjur og hægt er að nálgast logann m.a. hjá Bandalagi íslenskra skáta í Hraunbæ. Hér í Hafnarfirði er hægt að nálgast hann í kirkjunum þegar líður á aðventuna.  

Til þess að flytja hann er best að vera með olíulampa eða góða kertalukt. 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2