fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirÍþróttabandalag Hafnarfjarðar hefur fengið aðild að UMFÍ

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar hefur fengið aðild að UMFÍ

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar hefur fengið aðild að samtökum ungmennafélaga, Ungmennafélagi Íslands.

„Ég fagna þessu skrefi og trúi því og treysti að samvinna muni aukast innan íþróttahreyfingarinnar,“ sagði Hrafnkell Marinósson, formaður Íþróttabandalags Hafnarfjarðar, í kjölfar þeirra tímamóta sem urðu sl fimmtudag þegar stjórn UMFÍ samþykkti aðild ÍBH að UMFÍ. Undir það tekur Elísabet Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBH, sem ásamt Hrafnkeli leiddi umsóknarferlið gagnvart UMFÍ fyrir hönd ÍBH.

Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, segir fjölgun í ungmennafélagshreyfingunni mikið gleðiefni. „Við bindum miklar vonir við að nú skapist enn frekari tækifæri til að efla samvinnu og þekkingarmiðlun innan hreyfingarinnar,“ segir hann.

Yfirleitt eru nýir sambandsaðilar samþykktir á þingum UMFÍ. Á 52. sambandsþingi UMFÍ, sem haldið var á Húsavík árið 2021, var stjórn veitt heimild til þess að samþykkja aðild íþróttahéraða á milli þinga. ÍBH varð þar með fjórða íþróttabandalagið til að bætast við í UMFÍ. Þrjú bandalög eru þar fyrir; Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalag Akraness (ÍA).

Öll fengu þau aðild að UMFÍ á sambandsþingsi UMFÍ haustið 2019.

Snýst mikið um peninga

Samkvæmt heimildum Fjarðarfrétta snýst áhugi íþróttabandalaga á aðild að UMFÍ að miklu leyti um peninga, Lottópeninga. Mikill munur er á reglum um útdeildingu Lottópeninga hjá ÍSÍ og UMFÍ og félög sem hafa beina aðdild að UMFÍ og aðild að ÍSÍ fá mun hærri hlut en önnur félög.

Fimm ungmennafélög hafa beina aðild að UMFÍ og 21 íþróttahérað með um 450 félög. Segir á heimasíðu UMFÍ að félagsmenn séu rúmlega 270.000 talsins eða um 75% íslensku þjóðarinnar.

Búist er við að skipulagsbreytingar verði gerðar hjá ÍSÍ á næsta þingi þess 2023 þar sem næstu skref verða tekin og er talið að þar verði verkum skipt milli ÍSÍ og UMFÍ en UMFÍ hefur flutt skrifstofur sínar í húsnæði ÍSÍ.

Nærri öll íþróttafélög landsins innan UMFÍ

Með inngöngu ÍBH eru nú öll íþrótta- og ungmennafélög á höfuðborgarsvæðinu innan UMFÍ. Innan ÍBH eru skráðar um 15.000 iðkanir (sumir einstaklingar æfa fleiri en eina grein) hjá 25 aðildarfélögum í Hafnarfirði undir merkjum ÍBH. Innan ÍBH eru félög eins og FH, Haukar, Sundfélag Hafnarfjarðar, Kvartmíluklúbburinn, Badmintonfélag Hafnarfjarðar, golfklúbbar, hestamannafélög,  og mörg fleiri.

Sambandsaðilar UMFÍ eru nú 27 talsins sem skiptast í 22 íþróttahéruð og 5 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru því nú rúmlega 480 félög innan UMFÍ og enn fleiri einstaka deildir og ráð.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2