Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort á dögunum. Gjafakortin eru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls söfnuðust því 10 milljónir í jólastyrkjasöfnun Krónunnar þetta árið, sem veittar eru í formi rúmlega 450 gjafakorta.
Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinum bauðst að bæta 500 krónum við innkaupakörfuna í lokaskrefi greiðslu í verslunum Krónunnar, og myndi greiðslan renna til hjálparsamtaka í nærsamfélagi sem styðja þau sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir í ár eru sem fyrr segir veittir í formi gjafakorta og styrkþegar velja því sjálfir sína matarkörfu.
50 gjafakort til Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar
Alls söfnuðu Krónan og viðskiptavinir 1250 þúsund krónum í Hafnarfirði. Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar voru því færð 50 gjafakort á dögunum, hvert upp á 20 þúsund krónur.
Góðgerðarsamtökin sem hljóta styrk frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Árnessýslusjóðurinn góði, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Landakirkja í Vestmannaeyjum, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Rauðikross Víkursvæðis, Selfosskirkja, Soroptimistafélag Mosfellsbæjar, Stórólfshvolfskirkja, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis og Velferðarsvið Reykjanesbæjar.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/Gudrun-Adalsteinsdottir-300x220.jpg)
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir einstaklega ánægjulegt hvernig til tókst. „Jólastyrkjasöfnunin er okkur í Krónunni afar kær. Desember getur verið erfiður tími á mörgum heimilum, ekki síst á tímum verðbólgu og þrenginga. Þetta er í þriðja skipti sem við bjóðum viðskiptavinum að láta gott af sér leiða með þessum hætti og við trúum vart öðru en að gjafmildi þeirra muni létta undir á fjölmörgum heimilum fyrir jólin,“ segir Guðrún.