fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimKynningHvernig skiptast eignir dánarbúa milli erfingja?

Hvernig skiptast eignir dánarbúa milli erfingja?

Guðrún Björg Bragadóttir, verkefnisstjóri hjá KPMG Law skrifar

Ráðgjafar KPMG fá reglulega spurn­ingar frá viðskiptavinum um erfðamál. Eins og haft er eftir Benjamin Franklin einum af „landsfeðrum“ Banda­ríkjanna þá er ekkert öruggt í lífinu nema dauði og skattar. KPMG er með sér­fræðinga á sínum snærum sem hafa sérhæft sig í slíkum málum, þ.e. ekki dauð­anum sem slíkum heldur þeim laga­flækjum sem geta fylgt upp­gjöri dánarbúa.

Ráðgjafar KPMG aðstoða m.a. við gerð erfðaskráa og erfðafjárskýrslna, skiptingu dánarbúa og veita ráðgjöf varðandi erfðamál, þ.m.t. fyrirframgreiðslu arfs.

Erfingjar

Erfingjar skiptast í skylduerfingja, lögerfingja og bréferfingja. Skyldu­erfingjar eru maki (hjónaband áskilið) og börn. Lögerfingjar eru skylduerfingjar og önnur skyldmenni arfláta, þ.e. foreldrar, foreldrar foreldranna, systkini og af­­kom­endur þeirra. Bréferfingjar eru erfingjar skv. erfðaskrá.

Skylduerfingjar erfa arfláta í föstum hlutföllum, maki ávallt 1/3 og börn 2/3. Ef arfláti á engan maka, taka börn allan arf og að sama skapi ef arfláti á engin börn tekur maki allan arf. Ef arfláti á enga skylduerfingja þá taka aðrir lögerfingjar við eignum hans samkvæmt ákvæðum erfðalaga, nema arfláti eigi bréferfingja.

Arfláti sem á ekki skylduerfingja má með erfðaskrá ráðstafa öllum eignum sínum til þess eða þeirra sem hann sjálfur óskar. Ef arfláti á skylduerfingja má hann aðeins ráðstafa þriðjungi eigna sinna til þess eða þeirra sem hann sjálfur óskar. Þau sem eiga skylduerfingja, börn eða hjúskaparmaka, geta þannig ekki svipt maka og börn erfðarétti sínum.

Sambúðaraðilar

Milli hjóna er gagnkvæmur erfðaréttur og langlífari maki á rétt til setu í óskiptu búi. Sambúðarfólk getur undir engum kringumstæðum feng­ið leyfi til setu í óskiptu búi. Sambúðarfólk á ekki rétt á arfi eftir hvort annað nema gerð hafi verið erfðaskrá þess efnis sem samrýmist viðkomandi reglum erfða­laga. Rétt er að benda á að ef sam­búðarfólk gerir erfðaskrá sína réttilega þá greiðir eftirlifandi sam­búðaraðili ekki erfðafjárskatt af slíkum arfi.

Erfðaskrá

Allir einstaklingar 18 ára og eldri geta gert erfðaskrá en hún þarf að vera skrifleg og uppfylla ákveðin skilyrði varðandi þær upplýsingar sem þar þurfa að koma fram. Algengustu ákvæði í erfðaskrá eru heimildarákvæði um setu langlífari maka í óskiptu búi sem og ákvæði um ráðstöfun eigna með erfðaskrá. Einnig er nokkuð algengt að í erfðaskrá sé ákvæði þess efnis að arfur sé séreign erfingja.

Erfðafjárskattur

Greiða skal erfðafjárskatt af öllum fjárverðmætum sem erfingjar hins látna fá við skipti á dánarbúi, en þó greiðir langlífari hjúskaparmaki engan erfða­fjárskatt. Erfðafjárskattur er 10%. Engan erfðafjárskatt skal greiða af fyrstu 5.757.759 kr. í skattstofni dánarbús. Undanþágan gildir ekki um fyrirframgreiðslu arfs.

Skipti dánarbúa

Til að lesendur geti betur glöggvað sig á hver arfshluti hvers erfingja verður við skipti á ímynduðu dánarbúi ætlum við að leiða út arfshluta erfingja Jóns og Gunnu sem eru gift og eiga eitt barn saman. Jón á auk þess tvö börn frá fyrra sambandi og Gunna eitt barn. Alls eiga Jón og Gunna því fjögur börn. Hrein eign búsins er 100.000.000 kr.

Nú gerist það að Jón fellur frá og þá þarf fyrst að skoða hvort Gunna megi sitja í óskiptu búi. Gunna þarf að fá samþykki stjúpbarna sinna til að fá að sitja í óskiptu búi nema Jón og Gunna hafi gert erfðaskrá þar sem langlífari maka er heimilað að sitja í óskiptu búi. Gunna má alltaf skipta dánarbúinu þrátt fyrir ákvæði erfðaskrár um heimild til setu í óskiptu búi. Hún getur líka byrjað á að sitja í óskiptu búi og skipt búinu síðar, að hluta eða öllu leyti.

Eftirlifandi maki situr ekki í óskiptu búi:

Ef við gefum okkur að Gunna ákveði að skipta búinu, þá yrði arfshlutur Gunnu og barnanna sem hér segir:

Heildareign dánarbúsins          100.000.000
Helmingshluti maka                  50.000.000
Arfur maka (1/3)                      16.666.650
Arfur barna (2/3)                      33.333.350

Eignarhluti maka eftir skipti       66.666.650
Eignarhluti barns beggja hjóna   11.111.117
Eignarhluti barns 1 (Jónsbarn)   11.111.117
Eignarhluti barns 2 (Jónsbarn)   11.111.117
100.000.000

Nú gerist það að Gunna fellur frá. Til einföldunar gerum við ráð fyrir að dánarbú Gunnu eigi sömu fjárhæð og eignarhluti hennar var eftir skipti á dánarbúi Jóns, þ.e. 66.666.650 kr.

Arfur barnanna yrði sem hér segir:

Eignarhluti dánarbús Gunnu       66.666.650
Eignarhluti barns beggja hjóna   33.333.325
Eignarhluti barns Gunnu            33.333.325

Alls fá erfingjar Jóns og Gunnu:

Sameiginlegt barn                    44.444.441
Barn Gunnu                             33.333.325
Barn Jóns 1                             11.111.117
Barn Jóns 2                             11.111.117
100.000.000

Eftirlifandi maki situr í óskiptu búi fram að andláti

Ef Gunna hefði ákveðið að sitja í óskiptu búi fram að andláti þá hefði arfur milli hjóna fallið niður.

Skipti dánarbús Jóns og Gunnu hefði þá verið eftirfarandi:

Eignarhluti dánarbús Jóns      50.000.000
Arfur barns 1 (Jónsbarn)        16.666.667
Arfur barns 2 (Jónsbarn)        16.666.667
Arfur barns beggja hjóna       16.666.667

Eignarhluti dánarbús Gunnu    50.000.000
Arfur barns Gunnu                  25.000.000
Arfur barns beggja hjóna        25.000.000

Alls fá erfingjar Jóns og Gunnu:

Sameiginlegt barn                41.666.667
Barn Gunnu                         25.000.000
Barn Jóns 1                         16.666.667
Barn Jóns 2                         16.666.667
100.000.000

Ekki er tekið tillit til greiðslu erfða­fjárskatts við útleiðslurnar hér að framan.

Ljóst er að það er að mörgu að hyggja þegar kemur að uppgjöri dánarbús. Hér hef ég stiklað á stóru varðandi þau atriði sem skipta máli í slíku uppgjöri. Ég hvet öll þau sem koma að slíkum málum til að leita aðstoðar sérfróðra aðila, þannig að allt fari fram samkvæmt lögum og reglum.

Guðrún Björg Bragadóttir
verkefnisstjóri hjá KPMG Law

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2