fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimKynningFjölþætt heilsuefling 65+

Fjölþætt heilsuefling 65+

- inntaka nýrra þátttakenda í febrúar

Í febrúar verður tekinn inn nýr hópur í Fjölþætta heilsueflingu 65+ sem er verkefni á vegum Janusar heilsueflingar í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær og Janus heilsuefling hafa verið í farsælu samstarfi síðan 2018 en bærinn niðurgreiðir þátttakendagjald fyrir einstaklinga 65 ára og eldri sem hafa lögheimili í Hafnarfirði.

Janus Guðlaugsson

Upphafið að þessu verkefni er doktorsverkefni Janusar Guðlaugssonar, PhD-íþrótta- og heilsufræðings; Fjölþætt heilsurækt – Leið að farsælli öldrun. Með verkefninu var ætlað að sýna fram á að snúa mætti öldrunarferlinu við um tíma með markvissum heilsutengdum forvörnum. Rannsóknin stóð yfir í eitt og hálft ár og voru niðurstöðurnar ótvíræðar, eldri borgurum í hag.

Það kom í ljós að heilsa hinna eldri batnaði til muna, afkastageta þeirra efldist og hreyfigetan varð betri. Vöðvamassinn jókst samhliða því sem fitumassinn minnkaði. Þá lækkaði blóðþrýstingur verulega og blóðgildi færðust til betri vegar.

Eitt af markmiðum með heilsueflingunni er að gera einstaklinginn sjálfbæran á eigin heilsu og fræða hann um það hversu oft í viku, hve lengi í senn og hver ákefðin á að vera þegar stunduð er heilsurækt. Þannig eflist heilsulæsið því það gerir þetta enginn fyrir okkur. Til þess að snúa heilsunni til betri vegar þarf einstaklingur að hreyfa sig daglega í um 30 mínútur og stunda styrktarþjálfun 2-3 sinnum í viku. Þá þarf hann að nærast vel, sér í lagi að huga að próteinríkri fæðu vilji hann bæta vöðvamassann. Þetta er lykillinn að áframhaldandi árangri.

Í Hafnarfirði fara styrktaræfingar fram í Reebok á Tjarnarvöllum og þolæfingar í Kaplakrika og er aðstaðan til fyrirmyndar. Ásamt styrktar- og þoltímum höfum við boðið upp á svokallaða uppbrotstíma en það eru tímar sem fara fram utan hefðbundins æfingartíma og eru það tímar þar sem þjálfari leiðir hópinn í jóga, línudans og fleira.

Í upphafi verkefnisins fara þátttakendur í gegnum umfangsmiklar mælingar sem eru endurteknar á sex mánaða fresti.

Þátttakendur fara á líkamsgreiningartæki sem mælir meðal annars vöðva- og fitumassa, fengnar eru upplýsingar um lyfjasögu auk þess sem kannaður er styrkur, liðleiki, jafnvægi, hreyfifærni og þol. Með þessu fáum við betri mynd af því hvar þátttakendur eru staddir við upphaf þjálfunar en einnig hvernig þeim vegnar í þjálfuninni.

Mælingarnar fyrir nýja þátttakendur í Hafnarfirði fara fram á Lífsgæðasetri St. Jó dagana og 22. febrúar.

Þau sem hafa áhuga á að ganga í verkefnið eða kynna sér það frekar geta hringt í síma 546 1232 eða að skrá sig í verkefnið á heimasíðunni www.janusheilsuefling.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2